LeBron James jafnaði leikjamet Robert Parish í NBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 18:07 LeBron James er á fimmtudagsaldri og langelsti leikmaðurinn í NBA-deildinni í dag. Getty/Rich Storry LeBron James jafnaði við goðsögnina Robert Parish þegar hann spilaði sinn 1611. deildarleik í NBA aðfaranótt föstudags.
Það gerðist þegar LeBron James og Los Angeles Lakers unnu Miami Heat 134–126. Það þýðir að LeBron James hefur nú spilað jafn marga leiki og Robert Parish. LeBron James getur slegið metið og orðið einn á toppnum ef hann spilar þegar Los Angeles Lakers heimsækir Orlando Magic seint á laugardagskvöldið. LeBron James started for the Los Angeles Lakers against the Miami Heat on Thursday night, making it the 1,611th regular-season game of his career and tying Robert Parish’s all-time NBA mark. https://t.co/1ZMjasrzxy— NBC News (@NBCNews) March 20, 2026 Robert Lee Parish var 2,16 metra hár miðherji, kallaður „höfðinginn“ (e. the Chief), sem lék með fjórum liðum í NBA-deildinni frá 1976 til 1997. Á fjórtán ára ferli sínum með Boston Celtics myndaði Parish, ásamt framherjunum og goðsögnunum Larry Bird og Kevin McHale, eina bestu framlínu í sögu NBA en þeir unnu þrjá meistaratitla saman. James bauð heldur ekki upp á neinn meðalleik því hann var með þrefalda tvennu á móti sínu gamla félagi. James bauð upp á nítján stig, fimmtán fráköst og tíu stoðsendingar. Hann hitti úr átta af tólf skotum sínum í leiknum. Í leiknum á undan skoraði hann þrjátíu stig og hitti úr 13 af 14 skotum sínum. „Ef einhver verðskuldar að slá járnkarlametið, þá myndi ég segja að það væri LeBron James,“ sagði Parish við ESPN. „Vegna þess að hann hugsar svo vel um sig. Nálgun hans á líkamsrækt og það sem hann lætur ofan í sig endurspeglar, eða speglar, hvernig mér leið varðandi mína líkamsrækt og það sem ég borðaði, hvernig ég hugsaði um mig. Og það er því vitnisburður um ekki aðeins mína langlífi, heldur einnig langlífi LeBrons,“ sagði Parish. 1,611 GAMES FOR THE KING 👑LeBron James ties Robert Parish for most games played in NBA history 🏀 pic.twitter.com/3hBI1JwPkL— Sportsnet (@Sportsnet) March 20, 2026 Parish sem setti metið 9. apríl 1996 þegar hann fór fram úr Kareem Abdul-Jabbar sem var með 1.560 leiki. Miðherjinn bætti við metið áður en hann hætti árið 1997. Parish gerði ráð fyrir að einhver myndi á endanum slá metið. „Ó, nei, nei,“ sagði Parish þegar hann var spurður hvort hann hefði talið met sitt, sem stóð í næstum 30 ár, óbrjótanlegt. „Ég hélt að metið yrði slegið á endanum,“ sagði Parish. Parish var með 3,7 stig og 2,1 frákast að meðaltali þegar hann var 43 ára á sínu síðasta tímabili með Chicago Bulls árin 1996–97. Eftir leikinn á fimmtudaginn var James með 21,3 stig, 6,9 stoðsendingar og 5,8 fráköst að meðaltali á þessu tímabili með Lakers. LeBron James describes the feeling of becoming 2nd on the all-time wins list, passing Robert Parish 👏 https://t.co/rSydB3EahW pic.twitter.com/CVgMqTOi09— NBA (@NBA) December 8, 2025
NBA Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira