Einfalt er best Linda Jónsdóttir skrifar 22. mars 2026 11:03 Auðvitað á umræðan ekki að vera einhliða. Umræðan á að vera skynsamleg og sanngjörn. Borgarlínuverkefnið er svo yfirgengilega dýrt að það er óskynsamlegt og ekki síður mun það bókstaflega eyðileggja samgöngukerfi bifreiðarinnar - vinsælasta ferðamátans. Húsnæðisstefna verkefnisins er mannfjandsamleg, fólk er almennt sammála um það. Mannvæn byggð og frítt í strætó þýðir etv. minni gróði fyrir þá fjármagnseigendur sem stjórna borginni í dag og vilja stjórna henni áfram. Grímulaust er fjárfestum stillt upp sem oddvitum stærstu flokkanna. Þau eru auðvitað bara toppurinn á ísjakanum og þó tvö þeirra reyni að sannfæra kjósendur fyrir kosningar um að þau vilji “endurskoða” borgarlínu þá fer ekki á milli mála fyrir hverja þau eru í forsvari, ekki þarf að leita lengi. Kosningaloforð eru einskis virði Gleymum ekki risa vaxtasleggju kosningaloforðinu gott fólk. Sleggjan týndist ekki, hún var aldrei til og aldrei voru nein áform um að lækka vexti stórkostlega eftir síðustu þingkosningar. Þvert á móti hefur almenningur fengið allskonar auknar byrðar og fleiri á leiðinni - ekki síst vegna borgarlínunnar. Lausnina eigum við sjálf Lobbíistar borgarlínuverkefnisins viðurkenna auðvitað ekki að frítt í strætó sé besta lausnin og í þágu almennings. Lausn svo miklu hagkvæmari að það hleypur á tugum milljarða árlega og svo sáraeinföld að hægt er að byrja í fyrradag. Það er búið að finna upp hjólið og djúpa diskinn, til þess þurfti ekki launaða háskólagengna lobbíista. Hjólið og djúpi diskurinn í öllum sínum einfaldleika verða ekki endurbætt. Við eigum strætó og rekum hann - notum hann í núverandi mynd og spörum tugi milljarða árlega. Boðskapur Okkar Borg Hoppum í stætó án endurgjalds - auðvelt, einfalt og lang ódýrast! Notum áfram bílinn okkar, höfnum borgarlínu, borgarlínu-vegatollum og mannfjandsamlegri byggðastefnu borgarlínu! Veljum frelsi og skynsemi – veljum Okkar Borg Höfundur skipar 12. sæti framboðslista Okkar Borg í komandi borgarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Okkar borg Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Auðvitað á umræðan ekki að vera einhliða. Umræðan á að vera skynsamleg og sanngjörn. Borgarlínuverkefnið er svo yfirgengilega dýrt að það er óskynsamlegt og ekki síður mun það bókstaflega eyðileggja samgöngukerfi bifreiðarinnar - vinsælasta ferðamátans. Húsnæðisstefna verkefnisins er mannfjandsamleg, fólk er almennt sammála um það. Mannvæn byggð og frítt í strætó þýðir etv. minni gróði fyrir þá fjármagnseigendur sem stjórna borginni í dag og vilja stjórna henni áfram. Grímulaust er fjárfestum stillt upp sem oddvitum stærstu flokkanna. Þau eru auðvitað bara toppurinn á ísjakanum og þó tvö þeirra reyni að sannfæra kjósendur fyrir kosningar um að þau vilji “endurskoða” borgarlínu þá fer ekki á milli mála fyrir hverja þau eru í forsvari, ekki þarf að leita lengi. Kosningaloforð eru einskis virði Gleymum ekki risa vaxtasleggju kosningaloforðinu gott fólk. Sleggjan týndist ekki, hún var aldrei til og aldrei voru nein áform um að lækka vexti stórkostlega eftir síðustu þingkosningar. Þvert á móti hefur almenningur fengið allskonar auknar byrðar og fleiri á leiðinni - ekki síst vegna borgarlínunnar. Lausnina eigum við sjálf Lobbíistar borgarlínuverkefnisins viðurkenna auðvitað ekki að frítt í strætó sé besta lausnin og í þágu almennings. Lausn svo miklu hagkvæmari að það hleypur á tugum milljarða árlega og svo sáraeinföld að hægt er að byrja í fyrradag. Það er búið að finna upp hjólið og djúpa diskinn, til þess þurfti ekki launaða háskólagengna lobbíista. Hjólið og djúpi diskurinn í öllum sínum einfaldleika verða ekki endurbætt. Við eigum strætó og rekum hann - notum hann í núverandi mynd og spörum tugi milljarða árlega. Boðskapur Okkar Borg Hoppum í stætó án endurgjalds - auðvelt, einfalt og lang ódýrast! Notum áfram bílinn okkar, höfnum borgarlínu, borgarlínu-vegatollum og mannfjandsamlegri byggðastefnu borgarlínu! Veljum frelsi og skynsemi – veljum Okkar Borg Höfundur skipar 12. sæti framboðslista Okkar Borg í komandi borgarstjórnarkosningum.
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar