Körfubolti

Rodman í heiðurshöll WWE

Valur Páll Eiríksson skrifar
Rodman er ávallt skrautlegur.
Rodman er ávallt skrautlegur. Gilbert Carrasquillo/GC Images

Fyrrum körfuboltamaðurinn og glímukappinn Dennis Rodman var um helgina tekinn inn í heiðurshöll WWE-glímukeppninnar vestanhafs.

WWE staðfesti tíðindin um helgina en Rodman er öllu þekktari fyrir feril sinn á körfuboltavellinum en í glímuhringnum. Hann er á meðal umdeildari leikmanna í sögu NBA-deildarinnar, þekktur fyrir skrautlegar hárgreiðslur og sérkennilega hegðun innan vallar sem utan.

Rodman myndaði rosalegt tríó með þeim Michael Jordan og Scottie Pippen.Nordic Photos/Getty Images

Hann er talinn á meðal betri varnarmanna í sögu deildarinnar en körfuboltaferillinn var enn í blóma þegar hann reyndi fyrir sér í glímunni árið 1997 í WCW keppninni. Ári síðar skrópaði hann á æfingu á meðan úrslitaeinvíginu um NBA-meistaratitilinn stóð til að glíma við Hulk Hogan.

Glímuferlinum lauk 1999 þegar Rodman tók þátt í síðustu keppni sinni er hann barðist við Macho Man Randy Savage.

Um er að ræða aðra heiðurshöllina sem Rodman er tekinn inn í. Hann var tekinn inn í heiðurshöll NBA árið 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×