Rekstur Hörpu stöðugur þrátt fyrir krefjandi aðstæður Lovísa Arnardóttir skrifar 23. mars 2026 14:39 Skákmót í Hörpu. Vísir/Ívar Fannar Rekstur samstæðu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu ohf. var stöðugur á árinu 2025 þrátt fyrir ýmsar krefjandi ytri aðstæður, þar á meðal aukinn kostnaðarþrýsting á flestum sviðum, segir í tilkynningu. Þar segir að á síðasta ári hafi verið um 1,6 milljónir heimsókna í Hörpu og haldnir 1.344 viðburðir.
Þar af voru 846 tónleikar og aðrir listviðburðir með þátttöku íslenskra og erlendra listamanna. Alls voru afgreiddir 262.000 aðgöngumiðar í miðasölu Hörpu á árinu 2025. Þá var samkvæmt tilkynningu einnig haldinn fjöldi ráðstefna og fagviðburða, alls 471 viðburður. Meðal stærstu alþjóðlegu viðburða ársins voru Hringborð Norðurslóða (Arctic Circle), EVE Fanfest, Reykjavík Global Forum og Reykjavíkurskákmótið. „Árið 2025 endurspeglar stöðugleika í rekstri Hörpu. Þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi höldum við uppi öflugri starfsemi með fjölbreyttu viðburðahaldi og mikilli aðsókn innlendra og erlendra gesta. Harpa er lykilvettvangur menningar og viðburða á Íslandi og gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki í samfélagi og atvinnulífi. Hagræn áhrif Hörpu eru einnig veruleg eins og liggur nú fyrir. Við munum halda áfram að styrkja þá stöðu og skapa fjölþætt verðmæti til framtíðar,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri, í tilkynningu. Svanhildur Konráðsdóttir er forstjóri Hörpu.Aðsend Þar kemur fram að tekjur af starfseminni námu 1.838 milljónum króna og heildartekjur með framlögum eigenda 2.472 milljónum króna. Rekstrargjöld námu rúmum 2.300 milljónum króna og hækkuðu um fimm prósent milli ára. Rekstrarhagnaður (EBITDA ) var 171 milljón en tap samstæðunnar nam 138 milljónum króna að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða. Afskriftir námu 445 milljónum króna og endurspegla samkvæmt tilkynningu kostnaðinn sem fylgir viðhaldi stórra, tæknilega flókinna menningarinnviða og listaverks á borð við Hörpu. Eigið fé samstæðunnar nam 10.619 milljónum króna og eiginfjárhlutfallið var 29,6 prósent. Í tilkynningu kemur einnig fram að í fyrra hafi verið undirritaður nýr fimm ára samningur við eigendur Hörpu sem eru íslenska ríkið og Reykjavíkurborg. Fólk bæði dansar og syngur í Hörpu. Vísir/Ívar Fannar Í tilkynningu kemur einnig fram að sjálfbærni sé samofin starfsemi Hörpu og er húsið Svansvottað ráðstefnuhús. Markvisst sé unnið að því að lágmarka umhverfisáhrif og hámarka jákvæð áhrif á samfélag og atvinnulíf. Alls hafi verið 193 viðburðir tileinkaðir barnamenningu. Heildarfjöldi opinna og gjaldfrjálsra viðburða á vegum Hörpu og/eða í samstarfi við aðra á árinu nam 152 og endurspeglar vel áhersluna á samfélagslegt hlutverk hússins. Fimmtán ára í ár „Í vor fagnar Harpa 15 ára afmæli. Að baki eru mikilvæg mótunarár og það er ótrúlegur árangur sem hefur náðst varðandi skilning og viðurkenningu samfélagsins á tækifærunum sem húsið skapar. Það er mikilvægt að finna fleira en það en við megum aldrei sofna á verðinum í samtali okkar við samfélagið og stöðugri leit að tækifærum til að gera betur,“ segir Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, formaður stjórnar Hörpu, í tilkynningunni. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir formaður stjórnar Hörpu.Aðsend Á árinu fóru einnig fram 162 listviðburðir sérstaklega ætlaðir ferðamönnum, þar af 84 leiksýningar. Þá var í mars í fyrra opnuð eldfjallasýningin Volcano Express. Í tilkynningu segir að á næstu mánuðum verði önnur ný föst upplifunar- og fræðslusýning opnuð sem ber titilinn Heimur íslenskrar tónlistar og mun höfða jafnt til heimamanna sem erlendra gesta. Ný stjórn Hörpu var kjörin á aðalfundi stjórnar í dag. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir er áfram formaður og voru Árni Geir Pálsson og Ólöf Kristín Sigurðardóttir endurkjörin. Ný í stjórn Hörpu eru Gunnar Jónsson og Hrönn Greipsdóttir. Varamenn eru Jóhanna Gísladóttir og Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir.
Reykjavík Rekstur hins opinbera Harpa Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira