Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. mars 2026 11:00 Pétur Marteinn Páll Urbancic hlaut heiðursviðurkenningu Vatíkansins árið 2024, fyrstur Íslendinga, og tók við henni með fjölskyldu sinni í Landakotskirkju. Pétur Marteinn Páll Urbancic, fyrrverandi starfsmaður Seðlabanka Íslands, tónlistarmaður, leiðsögumaður og löggiltur skjalaþýðandi, lést á Hrafnistu laugardaginn 21. mars síðastliðinn, 94 ára að aldri.
Morgunblaðið greindi frá andláti hans í morgun. Pétur fæddist í Vínarborg í Austurríki 4. júlí 1931, sonur dr. Viktors Urbancic, hljómsveitarstjóra og tónskálds, og dr. Melittu Urbancic, doktors í málvísindum, kennara og leikkonu. Fjölskyldan flutti til Íslands árið 1938 og bjó Pétur í Reykjavík síðan. Systkini Péturs eru Ruth Erb, bóksali í Richmond í Virginíu, Sibyl Urbancic Kneihs, tónlistarmaður í Vín, og Eiríka Urbancic, fyrrverandi læknaritari við Landspítala. Seðlabankinn og tónlistin Pétur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1950 og útskrifaðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1951 með burtfararpróf á selló og kontrabassa. Hann lauk prófi í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands árið 1953 og stundaði síðar nám í samanburðarmálfræði og þýðingum í Vín. Pétur hóf ungur störf við Landsbanka Íslands og starfaði síðan hjá Seðlabanka Íslands frá stofnun hans árið 1961 til ársins 1997. Samhliða störfum sínum var tónlistina ætíð stór hluti af lífi hans. Pétur lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands á sjötta áratugnum og spilaði jafnframt með fjölda hljómsveita yfir margra áratuga bil, lék í leikhúsum borgarinnar, í útvarps- og sjónvarpsþáttum og á fjölda hljómplatna. Naust-tríóið að störfum. Pétur var hluti af Naust-tríóinu ásamt Carli Billich og Jan Moravek sem var húsband veitingastaðarins Naustsins við Vesturgötu og starfaði þar frá opnun staðarins haustið 1954 til ársins 1970. Þá var Pétur viðloðandi Hljómsveit Aage Lorange, spilaði inn á plötur með Hljómsveit Guðjóns Matthíassonar, lék með Hljómsveit Jans Morávek í kabarett- og revíusýningum í Iðnó, spilaði stuttlega í Tríói Steinþórs Steingrímssonar vorið 1953 og lék með Hljómsveit Braga Hlíðberg um árabil. Skjalaþýðandi, leiðsögumaður og formaður kaþólskra leikmanna Pétur var löggiltur skjalaþýðandi og dómtúlkur og starfaði fyrir þýska sendiráðið um langt árabil. Hann starfaði við þýðingar og prófarkalestur fram á mitt ár 2025, meðal annars fyrir Seðlabanka Íslands. Hann var einnig leiðsögumaður ferðamanna fram til ársins 2020, var meðal stofnfélaga í Félagi leiðsögumanna og varaformaður þess um skeið. Þá vann hann mikið starf í þágu kaþólska safnaðarins í Reykjavík og var meðal annars formaður Félags kaþólskra leikmanna. Fyrir þá þjónustu hlaut hann heiðursviðurkenningu frá Vatíkaninu árið 2024, fyrstur Íslendinga. Pétur kvæntist kennaranum Ebbu Ingibjörgu Egilsdóttur Urbancic þann 21. september 1957 en hún lést 31. mars 2015. Börn Péturs og Ebbu eru Ásta Melitta Urbancic, Viktor Jóhannes Urbancic, Anna María Urbancic, Linda Katrín Urbancic og Elísabet Sigríður Urbancic Lose. Eitt barn þeirra lést á fæðingardegi. Barnabörn Péturs og Ebbu eru tólf talsins og barnabarnabörnin átta.
Andlát Tónlist Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir Góðir straumar á Straumi Fjórðungur ekki með bókasafnskort Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Hlátrasköll hjá heitum hönnuðum Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sjá meira