Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2026 12:09 Maður flokkar póstatkvæði í Kaliforníu árið 2024. Trump Bandaríkjaforseti hefur haft horn í síðu póstatkvæða frá því fyrir forsetakosningarnar árið 2020 og hefur ítrekað haldið því fram án sannana að stórfelld kosningasvik hafi verið framin með þeim. Vísir/EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti greiddi atkvæði í gegnum póst í aukakosningum í Flórída. Hann hefur ítrekað lýst póstatkvæðum í kosningum sem svindli sem hann vilji banna.
Póstatkvæði Trumps barst Palm Beach-sýslu í Flórída samkvæmt opinberum gögnum. Fréttastofa NBC-sjónvarpsstöðvarinnar segir að það komu þó ekki fram hvernig atkvæðið barst sýsluyfirvöldum. Trump var í Flórída um helgina, eins og flestar helgar, en utankjörfundaratkvæðagreiðslunni lauk á sunnudag. „Póstatkvæði þýðir póstsvindl. Ég kalla þetta póstsvindl og við verðum að gera eitthvað í þessu,“ sagði forsetinn í gær. Repúblikanaflokkur Trump reynir nú að koma í gegnum þingið frumvarpi sem felur í sér stórtækar breytingar á umgjörð kosninga í Bandaríkjunum, rúmu hálfu ári áður en kosið verður til Bandaríkjaþings. Þó að Trump hafi ítrekað haldið því fram að póstatkvæði yrðu bönnuð næði frumvarpið fram að ganga á það ekki við rök að styðjast. Það yrði þó töluvert þyngra í vöfum en það hefur verið undanfarin ár. Fjöldi ríkja rýmkaði reglur um póstatkvæði fyrir kosningarnar 2020 sem voru haldnar í miðjum heimsfaraldri kórónuveiru. Trump hefur ítrekað lýst póstatkvæðum ranglega sem svikamyllu sem hafi meðal annars kostað hann sigur í forsetakosningunum árið 2020. Hann greiddi sjálfur atkvæði með pósti í þeim kosningum.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira