Meiri launaþrýstingur geti hrakið fyrirtæki úr landi Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 25. mars 2026 19:41 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, hefur áhyggjur af byggingafyrirtækjum í því umhverfi sem nú ríkir en segir flest þeirra standa vel andspænis erfiðum verkefnum. Vísir/Vilhelm Engin ótvíræð merki hafa komið fram um almennan greiðsluvanda í samfélaginu samkvæmt nýju riti fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Seðlabankastjóri segir eina af skýringunum liggja í háu atvinnustigi þótt blikur séu nú á lofti.
Hann varar launafólk við því að verðleggja sig út af markaðnum og óttast að fyrirtæki í vanda flýi til annarra landa þar sem launakostnaður sé minna íþyngjandi. Þetta kom fram á fundi fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans í dag. Nefndin vakti athygli á því að alþjóðapólitísk áhætta hafi verið mikil og hún fari nú vaxandi með stríðsátökum Bandaríkjanna og Ísraels við Íran. Olíuverð hefur farið hækkandi vegna lokunar siglingaleiðarinnar um Hormússund en Seðlabankastjóri benti á að áhrif þessara hækkana hér Íslandi muni að miklu leyti fara eftir því hversu lengi átökin munu standa og að hvaða marki orkuinnviðir í Mið-Austurlöndum verða eyðilagðir. Vaxandi hluti lána til byggingafyrirtækja áhættulánÁ fundinum létu nefndarmenn í ljós áhyggjur af innlendum byggingafyrirtækjum og sögðu skuldsetta seljendur torseljanlegra íbúða hæglega geta lent í fjárhagserfiðleikum ef aðstæður versna frekar. Mikið framboð íbúða og versnandi horfur um íbúðaeftirspurn auka hættu á fjárhagsþrengingum. Vaxandi hluti lána til byggingafyrirtækja er nú flokkaður sem lán með aukinni áhættu en mun lengri tíma tekur að selja íbúðir nú en áður.Fólk farið að halda að sér höndum„Við höfum aðeins áhyggjur af því en á móti kemur þá eru þessir verktakar sem hafa verið að byggja umræddar eignir allir með sterka fjárhagsstöðu og bankarnir sem standa að baki þeim eru líka með sterka fjárhagsstöðu. Þessi staða er til komin vegna þess að heimilin hafa verið að halda að sér höndum vegna kaupa á íbúðum,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.Áhyggjuefni ef laun hækka mun meira en hjá öðrum þjóðumÞá kom fram að engin ótvíræð merki hefðu komið fram um almennan greiðsluvanda í samfélaginu og að hátt atvinnustig gæti skýrt það þótt blikur væru á lofti um að atvinnuleysi væri að aukast.Auknar líkur eru á að forsendur kjarasamninga bresti í haust og gæti komið til átaka á vinnumarkaði. Seðlabankastjóri varaði launafólk við því að „verðleggja sig út af markaðnum“ og að Ísland ætti að taka betur mið af launaþróun í Þýskalandi sem hefur verið jafnari.„Þýskaland er náttúrulega leiðandi efnahagsveldi og að einhverju leyti taka eiginlega öll lönd í Evrópu mið af launaþróun þar -og við gerum það líka að einhverju marki. Það er auðvitað áhyggjuefni ef við erum að hækka launin okkar meira en aðrar þjóðir. Það endar þá með því að fyrirtæki reyna að flytja störf héðan og út í Evrópu,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Seðlabankinn Vinnumarkaður Verðlag Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Tengdar fréttir Margir sem bendir til að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant Þótt fyrirtækin standi almennt vel að vígi til að mæta efnahagsáföllum þá er staðan nokkuð misjöfn milli atvinnugreina og er margt sem bendir til þess að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant, að mati Seðlabankans, einkum vegna þess hversu sveiflukennd eftirspurnin getur verið. Ekki eru hins vegar enn sem komið skýrar vísbendingar um samdrátt í greininni í ár. 25. mars 2026 16:46 Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Það er áhyggjuefni að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands hversu mjög hefur hægst á sölu eigna á byggingamarkaði, bæði sölu á eignum í nýbyggingum og nú einnig eldri íbúðum. Seðlabankastjóri segir góðærinu að einhverju leyti lokið en að viðnámsþróttur í hagkerfinu sé með ágætum. 25. mars 2026 12:26 Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans gerir grein fyrir yfirlýsingu sinni sem gefin var út í morgun. Kynningin verður í beinu streymi á Vísi. 25. mars 2026 09:12 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira
Margir sem bendir til að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant Þótt fyrirtækin standi almennt vel að vígi til að mæta efnahagsáföllum þá er staðan nokkuð misjöfn milli atvinnugreina og er margt sem bendir til þess að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant, að mati Seðlabankans, einkum vegna þess hversu sveiflukennd eftirspurnin getur verið. Ekki eru hins vegar enn sem komið skýrar vísbendingar um samdrátt í greininni í ár. 25. mars 2026 16:46
Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Það er áhyggjuefni að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands hversu mjög hefur hægst á sölu eigna á byggingamarkaði, bæði sölu á eignum í nýbyggingum og nú einnig eldri íbúðum. Seðlabankastjóri segir góðærinu að einhverju leyti lokið en að viðnámsþróttur í hagkerfinu sé með ágætum. 25. mars 2026 12:26
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans gerir grein fyrir yfirlýsingu sinni sem gefin var út í morgun. Kynningin verður í beinu streymi á Vísi. 25. mars 2026 09:12