Vaktin: Vegum lokað og varað við ferðalögum á Suðurlandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. mars 2026 06:27 Spáin klukkan 10 í dag. Veðurstofa Íslands Fjölda vega á Suður- og Suðvesturlandi hefur verið lokað og þá tekur appelsínugul viðvörun gildi klukkan 7, vegna suðaustan og austan illviðris sem gengur yfir landið í dag. Á Vestfjörðum er gert ráð fyrir að veður versni upp úr klukkan 11. Varað er við ferðalögum þar sem appelsínugular viðvaranir verða í gildi. Lokað er um Kjalarnes, Hellisheiði, Þrengsli, Mosfellsheiði, Suðurstrandaveg, Hvalfjarðargöng, Hafnarfjall, Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Fróðárheiði. Þá er óvissustig á Reykjanesbraut til klukkan 12, sem þýðir að vegurinn gæti lokast með stuttum fyrirvara. Veðurstofa spáir suðaustan og austan 18-28 m/s undir morgun, hvassast suðvestantil. Talsverð snjókoma eða slydda, einkum suðaustan- og austanlands, en skúrir um landið sunnan- og vestanvert síðdegis. Hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Snýst í sunnan 8-15 eftir hádegi með slydduéljum, en austan hvassviðri og snjókoma norðan- og austantil fram á kvöld. Hlýnar í veðri, hiti um eða yfir frostmarki síðdegis. Hvernig er veðrið hjá þér? Þú getur sent okkur myndir og myndbönd af veðrinu eða fréttaskot á ritstjorn@visir.is. Fréttastofa Sýnar fylgist með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
Lokað er um Kjalarnes, Hellisheiði, Þrengsli, Mosfellsheiði, Suðurstrandaveg, Hvalfjarðargöng, Hafnarfjall, Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Fróðárheiði. Þá er óvissustig á Reykjanesbraut til klukkan 12, sem þýðir að vegurinn gæti lokast með stuttum fyrirvara. Veðurstofa spáir suðaustan og austan 18-28 m/s undir morgun, hvassast suðvestantil. Talsverð snjókoma eða slydda, einkum suðaustan- og austanlands, en skúrir um landið sunnan- og vestanvert síðdegis. Hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Snýst í sunnan 8-15 eftir hádegi með slydduéljum, en austan hvassviðri og snjókoma norðan- og austantil fram á kvöld. Hlýnar í veðri, hiti um eða yfir frostmarki síðdegis. Hvernig er veðrið hjá þér? Þú getur sent okkur myndir og myndbönd af veðrinu eða fréttaskot á ritstjorn@visir.is. Fréttastofa Sýnar fylgist með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
Hvernig er veðrið hjá þér? Þú getur sent okkur myndir og myndbönd af veðrinu eða fréttaskot á ritstjorn@visir.is.
Veður Umferð Færð á vegum Mest lesið Vaktin: Þakka fólki fyrir að fara að tilmælum Innlent Bein útsending: Sjónvarpsfréttir á Sýn í hádeginu Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innlent Barnlaus leikskóli Innlent Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Innlent Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Innlent Fleiri fréttir Málþing um konur sem lifa við langvinn veikindi Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Þakklátur að flestir fylgdu tilmælunum Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Barnlaus leikskóli Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Strætó hættir akstri í dag Ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins Bein útsending: Sjónvarpsfréttir á Sýn í hádeginu Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innan við fimmtán prósent telja loftslagsbreytingar ekki staðreynd Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Þau skipa lista Samfylkingarinnar á Akranesi Vaktin: Þakka fólki fyrir að fara að tilmælum Státum af klárasta barþjóni Evrópu Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Sjá meira