Völdu tilboð World Class í útboði sem er aftur í kæruferli Kjartan Kjartansson skrifar 26. mars 2026 08:57 Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri Vestmannaeyja. Bæjaryfirvöldum virðist loksins að verða að vilja sínum að fá World Class til þess að reka líkamsræktarstöð í bænum. Útboð í fyrra var ógilt og búið er að kæra nýafstaðið útboð. Vísir/Ívar Fannar Vestmannaeyjabær samþykkti tilboð World Class í rekstur í uppbyggingu heilsuræktar við íþróttamiðstöð bæjarins. Kærunefnd hefur kæru vegna útboðsins til meðferðar þar sem haldið er fram að það hafi verið klæðskerasniðið að World Class.
Tvö félög sóttust eftir sérleyfissamningi við Vestmannaeyjabæ um að reka og byggja upp heilsurækt við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja, annars vegar World Class og hins vegar Sporthöllin. Þetta var annað útboðið á rekstrinum en kærunefndnefnd ógilti útboð sem var haldið í fyrra. Bærinn tilkynnti báðum bjóðendum í gær að tilboð World Class hefði orðið fyrir valinu. Það hefði verið samþykkt og bindnandi samningur væri þegar kominn á um það. Tæplega einu stigi munaði á tilboðum World Class og Sporthallarinnar í stigagjöf útboðsins. World Class fékk fleiri stig fyrir fjölda stöðva sem fyrirtækið rekur og fyrir að vera jafnlaunavottað fyrirtæki. Heildartilboðsverð Sporthallarinnar fékka aftur á móti mun fleiri stig en World Class. Þeir sem stóðu að tilboði Sporthallarinnar kærðu útboðið í síðustu viku. Vísuðu þeir til ósanngjarnra skilmála útboðsins sem þeir töldu sérsniðið að World Class sem væri eina fyrirtækið í heiminum sem gæti uppfyllt þá. Þannig var þess krafist að bjóðendur væru með að minnsta kosti fimm þúsund manns í áskrift og að þeir ættu að minnsta kosti milljarð í eigið fé. Þá var það talið þeim til tekna að reka stöðvar víða um landið. Innan við fimm þúsund manns búa í Vestmannaeyjum. Fylgdu ekki reglum í fyrra útboði Þetta var í annað skiptið sem sami hópur kærði útboð Vestmannaeyjabæjar á heilsuræktinni. Kærunefnd útboðsmála ógilti fyrra útboð bæjarins frá því í fyrra á þeim forsendum að hann hefði ekki fylgt úboðsreglum. Eftir að kæran á upphaflega útboðið kom fram gerði Vestmannaeyjabær bráðabirgðasamning við World Class um að reka heilsuræktina. Fékk fyrirtækið leyfi til þess að byggja við aðstöðina á eigin kostnað. Ákvæði í samningnum við bæinn var þó um að sveitarfélagið þyrfti að endurgreiða fyrirtækinu þann kostnað ef það fengi ekki samninginn.
Vestmannaeyjar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Líkamsræktarstöðvar Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Hópur sem sóttist eftir að reka heilsuræktarstöð í Vestmannaeyjum er sagður hafa kært nýtt útboð bæjarins á rekstrinum. Bærinn réðst í nýtt útboð eftir að kærunefnd taldi hann hafa staðið rangt að upphaflegri auglýsingu eftir rekstraraðila og að hann væri bótaskyldur. 16. mars 2026 11:30 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira
Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Hópur sem sóttist eftir að reka heilsuræktarstöð í Vestmannaeyjum er sagður hafa kært nýtt útboð bæjarins á rekstrinum. Bærinn réðst í nýtt útboð eftir að kærunefnd taldi hann hafa staðið rangt að upphaflegri auglýsingu eftir rekstraraðila og að hann væri bótaskyldur. 16. mars 2026 11:30