Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins Samúel Karl Ólason skrifar 30. mars 2026 15:50 Ljósmyndarar að taka myndir af SLS-eldflaugastæðunni og Orion-geimfarinu á skotpalli í Flórída. AP/Terry Renna Fjórum geimförum verður á miðvikudaginn skotið af stað til tunglsins. Þar eiga þeir að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta verður í fyrsta sinn í marga áratugi, frá tímum Appollo-áætlunarinnar, sem menn verða sendir til tunglsins.
Geimskotið er liður í Artemis-áætluninni svokölluðu, sem er nú ætlað að leiða til varanlegrar viðveru manna á tunglinu. Þetta tiltekna geimskot kallast Artemis-II og er fyrsta mannaða geimskotið. Það snýst um að senda þau Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jeremy Hansen, frá Kanada til tunglsins um borð í Orion-geimfari. Fyrstu geimfararnir sem fóru á braut um tunglið voru geimfarar Apollo-8 en þeim var skotið á loft í desember 1968. Geimfarar lentu síðast á tunglinu árið 1972. Þá urðu þeir Gene Cernan og Harrison Schmitt ellefti og tólfti maðurinn til að ganga á yfirborði tunglsins. Hér að neðan má sjá beina útsendingu frá Orion-geimfarinu og SLS-eldflaugasamstæðunni á skotpalli í Flórída. Skotglugginn svokallaði opnast klukkan 22:24 að íslenskum tíma og verður opinn í tvær klukkustundir. Gangi ætlanir forsvarsmanna NASA ekki eftir opnast annar gluggi mánudaginn 6. apríl. Þetta verður þriðja tilraunin til að koma geimförunum af stað til tunglsins en bilanir hafa komið í veg fyrir að það hafi verið hægt hingað til. Frá vinstri: Jeremy Hansen, frá Kanada, Christina Koch, Reid Wiseman og Victor Glover.AP/Chris O'Meara Mikill hægagangur Í millitíðinni hafa verið gerðar nokkuð umfangsmiklar breytingar á bæði Artemis-áætluninni og ætlunum Bandaríkjamanna varðandi tunglið. Artemis-áætlunin snýst í stuttu máli um að senda geimfara aftur til tunglsins og koma þar upp varanlegri viðveru. Lengi stóð til að geimskotin vegna áætlunarinnar yrðu fjögur og átti svo að bæta við fleiri reglulegum geimferðum til tunglsins. Á tímum Apollo-áætlunarinnar liðu átta ár frá því að starfsmenn NASA sendu fyrstu geimfarana á braut um jörðina. Artemis-áætlunin hefur gengið mun hægar fyrir sig. Mörg ár fóru í að velja á milli þess hvort reyna ætti að fara til tunglsins eða Mars. Artemis I sendi geimfar á braut um tunglið í nóvember 2022. Artemis-II á svo að taka á loft á miðvikudaginn. Geimfararnir í Artemis-III eiga nú ekki lengur að lenda á tunglinu eins og áður stóð til. Þess í stað eiga þeir, um mitt næsta ár, að fara á braut um jörðina. Þar eiga þeir að prófa að fara úr Orion-geimfari yfir í lendingarfar eða lendingarför sem starfsmenn SpaceX og Blue Origin eru að vinna að. Gangi áætlanir NASA eftir eiga geimfarar Artemis-IV að lenda á tunglinu árið 2028. Sjá einnig: Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Þá tilkynnti Jared Isaacman, nýr yfirmaður NASA, nýlega umfangsmiklar breytingar á ætlunum Bandaríkjamanna varðandi tunglið. Hann sagði að setja ætti mun meira púður í að koma upp bækistöð á yfirborði tunglsins og hafa þar varanlega viðveru. Þetta sagði Isaacman að Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra þyrftu að gera hið snarasta. Þeir væru í kappi við Kínverja sem lentu nýlega lendingarfari á fjarhlið tunglsins og ætla sér að lenda geimförum við suðurpól tunglsins fyrir árið 2030. „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar,“ sagði Isaacman.
Bandaríkin Tunglið Artemis-áætlunin Geimurinn Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Eftirlýstur og með vopn á sér Innlent Fleiri fréttir Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Sjá meira