Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-59 | Hrifsuðu heimavöllinn til sín Smári Jökull Jónsson skrifar 31. mars 2026 20:39 Frá leik Grindavíkur og Vals fyrr á tímabilinu vísir / anton Grindavík hafði betur gegn Val er liðin mættust í fyrsta leik sínum í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 55-59 Grindavík í vil í spennuþrungnum leik þar sem lítið var skorað. Það fór ekki mikið fyrir góðum sóknarleik í fyrri hálfleik. Báðum liðum gekk ill að skora og það var ekki fyrr en Abby Beeman setti niður tvö þriggja stiga skot sem stigaskorið fór í tveggja stiga tölu. Valskonum gekk bölvanlega að setja niður boltann í gegnum körfuhringinn og um miðjan annan leikhluta var staðan 23-9 fyrir Grindavík eftir gott áhlaup gestanna. Þá fór hins vegar allt í baklás hjá gestunum. Valskonur stigu upp, fóru að setja stig á töfluna og í lás í vörninni. Þær skoruðu síðustu ellefu stig leikhlutans, náðu muninum niður í þrjú stig og Grindvík skoraði ekki körfu síðustu tæpu sex mínútur fyrri hálfleiksins. Staðan í hálfleik 23-20, skor sem oftar en ekki sést að loknum einum leikhluta en ekki tveimur. Í síðari hálfleik var áfram rólegt yfir sóknarleik liðanna, Grindavík byrjaði þriðja leikhlutann á að komast níu stigum yfir en Valskonur minnkuðu muninn jafnt og þétt og hann var aðeins eitt stig þegar fjórði leikhlutinn hófst, staðan þá 36-35 fyrir gestina. Valskonur hófu síðan lokafjórðunginn á þriggja stiga körfu og komust yfir en Grindavík svaraði með því að skora sjö stig í röð. Valskonur voru þó ekki hættar, tóku 11-4 áhlaup og náðu sex stiga forskoti. Grindavík tókst að minnka muninn og þegar 1:50 var eftir fékk Ásta Júlía Grimsdóttir sína fimmtu villu en hún hafði verið frábær í liði Vals fram að því. Þarna var staðan 53-49 fyrir Val en Grindavík gekk á lagið eftir að Ásta Júlía fór af velli og jafnaði metin í 55-55. Abby Beeman stal í kjölfarið boltanum og skoraði, Valur tók leikhlé og þegar leikmenn voru að ganga af velli flautaði skyndilega Kristinn Óskarsson og dæmdi óíþróttamannslega villu á Alyssa Cerino fyrir að labba utan í Beeman á leið sinni á bekkinn. Ótrúlegt atvik og stór ákvörðun að dæma á þessum tímapunkti. Í staðinn fyrir að Valskonur færu í sókn fékk Grindavík tvö víti og boltann í hendurnar. Eftir þetta tókst Val ekki að jafna. Abby setti annað vítið niður og svo eitt í viðbót stuttu seinna efitr að Valskonum tókst ekki að skora. Lokatölur 59-55 fyrir Grindavík sem þar með tekur forystuna í einvíginu og er búið að ná útisigrinum sem liðið þurfti í einvíginu. Atvik leiksins Það er þessi dómur undir lokin. Ég veit ekki hvort hann var réttur en hann var svo sannarlega risastór. Á svona augnabliki þarf Kristinn að vera 100% viss um að Cerino hafi viljandi gefið Abby Beeman högg með líkamanum á leið sinni af velli og eflaust var hann það. Engu að síður er leiðinlegt þegar spennandi leikur svo gott sem ræðst á svona atviki. Stjörnur og skúrkar Ásta Júlía Grímsdóttir hafði verið frábær áður en hún fékk fimmtu villuna. Hún lauk leik með 10 stig og 20 fráköst. Reshawna Stone var stigahæst hjá Val með 16 stig og þá skoraði Sara Líf Boama 11 stig og tók 11 fráköst. Abby Beeman var langstigahæst á vellinum með 29 stig en Ísabella Ósk Sigurðardóttir skoraði 14. Dómararnir Kristinn Óskarsson, Jakob Arnar Ísleifsson og Aron Rúnarsson sáu um flautuleikinn og gerðu ágætlega heilt yfir. Atvikið undir lokin er stórt og hefur mikil áhrif á leikinn. Ég hef ekki séð á myndbandi hvað gerðist og vonandi var þetta réttur dómur. Stemmning og umgjörð Það var ágætis mæting en vissulega hefði verið gaman að sjá fleiri í stúkunni á fyrsta leik í úrslitakeppni. Stemmningin jókst þó í takt við það að áhorfendum fjölgaði þegar líða fór á leikinn. Umgjörðin hjá Val var fín, skotkeppni fyrir bæði börn og fullorðna í hálfleik þar sem goðsögnin og fyrrum leikmaður Grindavíkur Guðmundur Bragason gerði sér lítið fyrir og setti niður miðjuskot. Bónus-deild kvenna Valur UMF Grindavík