Erlent

Bein út­sending: Leggja loks af stað til tunglsins

Samúel Karl Ólason skrifar
Orion-geimfarið með tunglið í bakgrunni. Ferðalagið á að taka um tíu daga og munu geimfararnir fjórir fara í rétt rúmlega fjögur hundruð þúsund kílómetra fjarlægð frá jörðu. Það er lengra en maðurinn hefur farið áður.
Orion-geimfarið með tunglið í bakgrunni. Ferðalagið á að taka um tíu daga og munu geimfararnir fjórir fara í rétt rúmlega fjögur hundruð þúsund kílómetra fjarlægð frá jörðu. Það er lengra en maðurinn hefur farið áður. AP/Sam Lott

Fjórum geimförum verður í kvöld skotið af stað til tunglsins, gangi ætlanir forsvarsmanna Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna eftir. Þar eiga þeir að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta verður í fyrsta sinn í marga áratugi, frá tímum Appollo-áætlunarinnar, sem menn verða sendir til tunglsins.

Geimskotið er liður í Artemis-áætluninni svokölluðu, sem er ætlað að leiða til varanlegrar dvalar manna á tunglinu. Þetta verður fyrsta mannaða tunglferðin í fimmtíu og þrjú ár en geimfararnir fjórir heita Jeremy Hansen, Christina Koch, Reid Wiseman og Victor Glover.

Skotglugginn svokallaði opnast klukkan 22:24 að íslenskum tíma og verður opinn í tvær klukkustundir.

Hægt er að fylgjast með umfjöllun NASA í aðdraganda geimskotsins og beinni útsendingu frá geimskotinu sjálfu seinna í kvöld í spilaranum hér að neðan. Útsendingin hófst klukkan fimm í dag og mun standa yfir í allt kvöld.

Veður lítur vel út fyrir kvöldið en algengt er að eitthvað komi upp á þegar geimskot sem þessi eiga að gerast. Þetta er í þriðja sinn sem til stendur að skjóta þessum tiltekna hópi geimfara til tunglsins en bilanir hafa hingað til komið í veg fyrir að af því hafi orðið.

Gangi geimskotið ekki upp í kvöld opnast annar skotgluggi á mánudaginn 6. apríl.

Fyrsta sinn í 53 ár

Geimskotið er liður í Artemis-áætluninni svokölluðu, sem er nú ætlað að leiða til varanlegrar viðveru manna á tunglinu.

Þetta tiltekna geimskot kallast Artemis-II og er fyrsta mannaða geimskotið. Það snýst um að senda þau Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jeremy Hansen, frá Kanada til tunglsins um borð í Orion-geimfari.

Sjá einnig: Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins

Fyrstu geimfararnir sem fóru á braut um tunglið voru geimfarar Apollo-8 en þeim var skotið á loft í desember 1968. Geimfarar lentu síðast á tunglinu árið 1972. Þá urðu þeir Gene Cernan og Harrison Schmitt ellefti og tólfti maðurinn til að ganga á yfirborði tunglsins.

Fjórmenningarnir í Orion-geimfarinu í Flórída verða mögulega fyrstu mennirnir til að berja fjarhlið tunglsins augum og verða þau einnig þeir geimfarar sem farið hafa lengst frá jörðinni, eða rétt rúmlega fjögur hundruð þúsund kílómetra.

Hér að neðan má sjá ferðalagið sem geimfararnir eiga að fara.

Artemis-áætlunin snýst í stuttu máli um að senda geimfara aftur til tunglsins og koma þar upp varanlegri viðveru. Lengi stóð til að geimskotin vegna áætlunarinnar yrðu fjögur og átti svo að bæta við fleiri reglulegum geimferðum til tunglsins.

Á tímum Apollo-áætlunarinnar liðu átta ár frá því að starfsmenn NASA sendu fyrstu geimfarana á braut um jörðina. Artemis-áætlunin hefur gengið mun hægar fyrir sig. Mörg ár fóru í að velja á milli þess hvort reyna ætti að fara til tunglsins eða Mars.

Artemis I sendi geimfar á braut um tunglið í nóvember 2022.

Geimfararnir í Artemis-III eiga nú ekki lengur að lenda á tunglinu eins og áður stóð til. Þess í stað eiga þeir, um mitt næsta ár, að fara á braut um jörðina. Þar eiga þeir að prófa að fara úr Orion-geimfari yfir í lendingarfar eða lendingarför sem starfsmenn SpaceX og Blue Origin eru að vinna að.

Gangi áætlanir NASA eftir eiga geimfarar Artemis-IV að lenda á tunglinu árið 2028.

Sjá einnig: Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028

Þá tilkynnti Jared Isaacman, nýr yfirmaður NASA, nýlega umfangsmiklar breytingar á ætlunum Bandaríkjamanna varðandi tunglið. Hann sagði að setja ætti mun meira púður í að koma upp bækistöð á yfirborði tunglsins og hafa þar varanlega viðveru.

Þetta sagði Isaacman að Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra þyrftu að gera hið snarasta. Þeir væru í kappi við Kínverja sem lentu nýlega lendingarfari á fjarhlið tunglsins og ætla sér að lenda geimförum við suðurpól tunglsins fyrir árið 2030.

„Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar,“ sagði Isaacman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×