New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Freyja Þórisdóttir skrifar 2. apríl 2026 09:21 Fyrrverandi Bandaríkjaforsetinn Bill Clinton heimsótti standinn í miðbæ Reykjavíkur árið 2004 og pantaði sér pylsu með engu nema sinnepi. Getty Verðbólga hefur verið áberandi umfjöllunarefli fjölmiðla undanfarin misseri en nú hefur hún mögulega í fyrsta skipti verið skoðuð frá sjónarhóli pylsuunnenda. Þrátt fyrir að verð nái nýjum hæðum þá hörfa Íslendingar ekki frá þeim góða sið að fá sér eina með öllu.
Þjóðarréttur Íslendinga Þetta er meðal þess sem bandaríski miðillinn New York Times birti í frétt sinni í vikunni. Þar segir einnig að ef Íslendingar ættu þjóðarrétt þá væri það ein með öllu. „Ef Ísland ætti þjóðarrétt væri það pylsan. Hún er áþekk „dollarapítsusneiðinni“, þessu tákni um ódýran mat í New York-borg: heit, áreiðanleg og betri en hún þyrfti að vera,“ segir í fréttagreininni. Höfundur hennar fór vítt og breytt um höfuðborgarsvæðið en hún gerði sér meðal annars ferð á Pylsubarinn í Hafnarfirði. Þar tók helgarstarfsmaðurinn Gabriel Máni De Sousa að sér að afgreiða hana. Pylsubarinn í Hafnarfirði býður upp á klassíska pylsu með öllu en gestir geta einnig bætt við bræddum osti, frönskum og kryddi.Vísir/Anton Brink Gabriel tjáir höfundi að allir Íslendingar fái sér af og til pylsu, ríkir jafnt sem fátækir. Hann hófst í kjölfarið handa við að útbúa „eina með öllu“ sem af þeim hjá New York Times er lýst á þennan veg. „Bæði hráum og steiktum lauk er komið fyrir á milli pylsunnar og brauðsins og vænni gusu af tómatsósu, sætu brúnu sinnepi og remúlaði ofan á. Pylsurnar eru yfirleitt gerðar úr blöndu af þremur kjöttegundum, íslensku lambakjöti og nautakjöti ásamt smá af innfluttu svínakjöti, og þær hafa alvöru smell sem fylgt er eftir af safaríkum gusum sem myndu láta amerískar hliðstæður sínar skammast sín,“ en þessar ómótstæðilegu langsteikur sem höfundur lýsir hér eru ekki ónæmar fyrir verðbólgunni. New York Times tók saman þau verð sem eru hvað algengust þegar kemur að pylsum hérlendis. Þar er niðurstaðan að þær séu að kosta um og yfir 750 krónur, sem sé lágt miðað við margt annað en að aðrir skyndibitar, svo sem kebab og pítsa, séu að kosta tvöfalt ef ekki þrefalt meira. Meira hækkað síðustu ár en þau 20 á undan En í kjölfar hækkandi neytendavísitölu hefur verð á pylsum orðið hærra og á einum frægasta pylsustað landsins, Bæjarins Beztu, hefur verðið hækkað meira á síðustu árum en á þeim tuttugu sem komu þar á undan. Erlendir ferðamenn sem koma til landsins ákveða líklegast margir hverjir að gera pylsustand Bæjarins Beztu í miðbæ Reykjavíkur að einum af áfangastöðum heimsóknarinnar.Vísir/Vilhelm Þetta segir Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmdastjóri pylsustaðsins, en staðurinn hefur selt pylsur í miðbæ Reykjavíkur síðan á fjórða áratug síðustu aldar og eru staðirnir nú fjórtán talsins. Árið 2022 var verðið 600 krónur en nú er það 880 krónur. Verðbólga hefur aukið hráefniskostnað og laun hafa sömuleiðis hækkað og því er mál með vexti að rekstrarkostnaður fyrirtækisins er hærri. „Við erum yfirleitt alltaf í fréttunum þegar við hækkum verðið,“ bætir hann við og grínast með að hafa gert það að markmiði sínu að reyna að halda sig úr fréttafyrirsögnum. Fá ekki nóg Jakob Hjalmar Konráðsson og Krista María Finnbjörnsdóttir, stoltir pylsuunnendur, ræddu við höfund greinarinnar hjá New York Times um dálæti sitt á pylsum. Þá segist Jakob hafa gengið svo langt að taka með sér „vakúm“ pakkaðar pylsur þegar hann bjó erlendis, í Noregi og Svíþjóð. Þau segja einnig frá því að móðir Kristu hafi sent henni pylsur þegar hún var í námi í Bretlandi. Jakob Hjálmar Konráðsson og Krista María Finnbjörnsdóttir deila ást sinni á pylsum og þá sérstaklega þeim sem fást á pylsustandi Bæjarins Beztu.Vísir/Vilhelm „Þær eru mjög ávanabindandi,“ sagði Krista María en undir það tekur Jón og segir einfaldlega ekkert jafnast á við pylsur. Þau borða nokkrar pylsur frá Bæjarins Beztu í hverri viku. Parið fór að rifja upp hversu lágt verðið var í æsku þeirra eða um 350 krónur fyrir pylsu og gos, „það er mjög klassískt að fá sér pylsu og kvarta undan verðinu,“ sagði Jakob þá í gríni.
Matarást Menning Bandaríkin Reykjavík Hafnarfjörður Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira