Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 2. apríl 2026 22:58 Trump undirritaði tilskipunina í dag. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í dag forsetatilskipun sem felur í sér hundrað prósenta toll á innflutt lyf sem framleidd eru undir einkaleyfi. Framleiðendur geta komið sér hjá tollinum með því að semja við Bandaríkjastjórn um lægra verðlag eða skuldbinda sig til að framleiða lyfin innan Bandaríkjanna.
Í tilkynningu frá Hvíta húsinu segir að markmið tollanna sé að stuðla að þjóðaröryggi, sem felist í því að sem flest lyf séu framleidd innanlands. Nokkrir af stærstu lyfjaframleiðendum heims undirrituðu samning við Bandaríkjastjórn í fyrra sem fól í sér að lyf að verðmæti margra milljarða Bandaríkjadala yrðu undanþegin tollum næsta árið. Þá hafa samheitalyf einnig verið undanþegin tollum, að því er kemur fram í umfjöllun Reuters. Þá eru lyf við sjaldgæfum sjúkdómum og dýralyf undanþegin tollunum ef þau koma frá löndum í viðskiptasambandi við Bandaríkin eða uppfylla brýnar lýðheilsuþarfir. Tollarnir munu því helst bitna á litlum og meðalstórum framleiðendum nema þeir semji við bandarísk stjórnvöld um verðlag eða flytji framleiðsluna til Bandaríkjanna. Fram kemur í frétt BBC að aðgerðin hafi því helst táknrænt gildi, sér í lagi vegna þess að meginþorri lyfja sem er neytt í Bandaríkjunum eru samheitalyf. Fyrirtæki sem skuldbinda sig til að flytja lyfjaframleiðslu sína til Bandaríkjanna fyrir lok kjörtímabils Trump, í janúar 2029, sæta áfram 20 prósenta tolli á innflutt lyf. Takist framleiðendum að gera verðlagningarsamning við stjórnvöld fellur tollurinn alveg niður. Hingað til hafa slíkir samningar falið í sér að fyrirtækin selji sjúkratryggingum lyfin á sambærilegu verði og sams konar lyf á erlendum mörkuðum. Trump hefur að undanförnu beitt lyfjaframleiðendur þrýstingi vegna kostnaðar á lyfjum. Samkvæmt umfjöllun Guardian borga bandarískir sjúklingar oft næstum þrefalt meira fyrir lyfseðilsskyld lyf en í öðrum þróuðum löndum. Stórum fyrirtækjum er gefinn 120 daga frestur til að gera viðeigandi ráðstafanir til að komast hjá tollunum og minni fyrirtæki fá 180 daga frest til að semja við bandarísk stjórnvöld.
Donald Trump Bandaríkin Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Opin vinnurými: Starfsfólki líður illa og finnst erfitt að einbeita sér Atvinnulíf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira