Doncic missir mögulega af öllum verðlaunum vegna meiðsla Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. apríl 2026 18:31 Luka Doncic fór meiddur af velli í nótt og það gæti kostað hann dýrt. Cooper Neill/Getty Images Eftir að hafa orðið fyrir meiðslum í nótt gæti Luka Doncic misst af öllum einstaklingsverðlaunum í NBA deildinni. Líkur Los Angeles Lakers á því að fara langt í úrslitakeppninni snarlækka sömuleiðis.
Enn er verið að meta alvarleika meiðslanna sem Doncic varð fyrir í nótt. Hann fór meiddur af velli í þriðja leikhluta í 139-96 tapi gegn ríkjandi meisturum Oklahoma City Thunder. Luka Doncic went back to the locker room after going down on this play.The Lakers were down 32 points at the time.Hope he’s okay 🙏 pic.twitter.com/7jqzU8cuOz— ClutchPoints (@ClutchPoints) April 3, 2026 Fyrir þennan leik hafði Doncic verið að spila stórkostlega. Lakers unnu fimmtán leiki í marsmánuði en töpuðu aðeins tveimur, sem kom liðinu upp í þriðja sæti vesturdeildarinnar. Í leikjum án Doncic hafa Lakers unnið sjö og tapað sex leikjum. Þetta var 64. leikur Doncic á tímabilinu en hann missir líklega af síðustu fimm leikjunum á næstu tíu dögum fyrir úrslitakeppni, vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í nótt. Þar með er hann ógjaldgengur til einstaklingsverðlauna, eins og MVP verðlaunanna fyrir verðmætasta leikmanninn. Til þess að fá þau verðlaun þurfa leikmenn að spila að minnsta kosti 65 leiki. Luka Doncic seems to pull up because of his left hamstring This is the SAME hamstring he hurt prior in the season. If it’s a strain timeline is dependent on severity Grade I: 1-2 weeks Grade II: 3-6 weeks pic.twitter.com/VdFWqz2snl— Dr. Evan Jeffries, DPT (@GameInjuryDoc) April 3, 2026 Doncic er stigahæsti leikmaður deildarinnar, með 33.5 stig að meðaltali í leik, auk 8.3 stoðsendinga og 7.7 frákasta. Hann þótti meðal fimm líklegustu leikmanna til að vinna MVP verðlaunin. Líklegast mun þó annað hvort Nikola Jokic eða Shai Gilgeous-Alexander vinna þau verðlaun. Vegna 65 leikja reglunnar verður Doncic ekki heldur gjaldgengur í All-NBA úrvalsliðin, ef hann spilar ekkert í síðustu fimm leikjunum. Allt saman hefur þetta áhrif á framtíð hans hvað samninga varðar, samningar geta orðið stærri því oftar sem leikmenn eru verðlaunaðir. Cade Cunningham og Anthony Edwards eru í sömu stöðu og Doncic gæti lent í. Þeir munu ekki ná að spila 65 leiki á tímabilinu en hefðu annars eflaust verið valdir í All-NBA lið.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Sjá meira