Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. apríl 2026 08:01 Grétar Ingi Erlendsson er oddviti D-listans í Ölfusi. Aðsend Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Grétar Ingi Erlendsson er oddviti D-listans í sveitarfélaginu Ölfusi. Ég heiti Grétar Ingi Erlendsson og starfa sem verkefnastjóri hjá ferðaþjónustufyrirtæki. Ég hef einnig gengt formennsku í Bæjarráði Ölfuss á undanförnum árum. Ég bý ásamt konu minni, Júlíönu Áramannsdóttur og tveimur dætrum, þeim Sólveigu (15 ára) og Kristínu (11 ára) í Þorlákshöfn. Ég er uppalinn í Þorlákshöfn og því Ölfusingur í húð og hár. Ég hef mikla ástríðu fyrir mínu sveitarfélagi og vill sjá það blómstra sem aldrei fyrr. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? Það er, að mínu mati, hvergi betra að vera en hér í Þorlákshöfn en ef ég yrði að velja þá væri ég til í að prófa að búa einhvers staðar fyrir norðan. Húsavík eða Akureyri sem dæmi. Hver er uppáhalds bókin þín? Ég hef mjög gaman af öllu sagnfræði tengdu. Bókin sem kom fyrst í huga er Sapiens, a brief history of humankind eftir Yuval Noah Harari. Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? Fjárfestingar sem tengjast ekki lögbundnum verkefnum sveitarfélagins. Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? Velferðarsvið þá sérstaklega verkefnum sem tengjast snemmtækri íhlutun. Hver væri titill ævisögu þinnar? Hvað ætla ég að verða þegar ég er orðinn stór Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? Hringja ef erindið er brýnt en skilaboð ef það má bíða Með fjölskyldunni á fermingardegi Sólveigar.Aðsend Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? Ég er bara alls ekki viss… Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? Pípulögnum, alltaf eitthvað vesen á þessu og ég veit gjörsamlega ekki neitt um þetta. Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? Ómögulegt að segja til um hvaða ákvörðun verður umdeild eða ekki. Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? Að sannreyna hvort vatnsmelónur væru í raun ber. Kemur ýmislegt upp þegar fjölskyldan er að spila pöbbkviss. Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. Ég hef gert mörg mistök í gegnum ævina, látum það duga Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? Fólkið 😊 Hvað borðar þú í morgunmat? Ekkert Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? Íþyngjandi regluverk af hálfu ríkisins. Ríkið er alltof gjarnt á að festa hluti í lög án þess að kanna haða áhrif það hefur á sveitarfélög. Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? Það er hægt að afreka ansi margt á fjórum árum. Við ætlum t.d. að byggja við grunnskólann, byggja fjölnota íþróttahús og lækka álögur enn frekar. Auðvitað margt fleira en læt þetta duga. Hvert er uppáhalds lagið þitt? All Along the Watchtower með Jimi Hendrix Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? Örugglega fleiri en ein, en mistök eru til að læra af. Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? Big Papa þegar ég var enn að leika körfuknattleik með Þór Þorlákshöfn. Það átti bara eitthvað svo vel við á þeim tíma. Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? Ég mun gera mitt allra besta til að standa við þau öll. Vísir skorar á oddvita stjórnmálaflokka út um allt land að taka þátt í Oddvitaáskoruninni til að kynna sig og sín málefni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda póst á siljars@syn.is. Fyrri Oddvitaáskoranir má skoða á síðunni visir.is/p/oddvitaaskorun. Oddvitaáskorunin Sjálfstæðisflokkurinn Ölfus Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Nú styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar og Vísir stendur sem fyrr fyrir Oddvitaáskoruninni. Oddvitar um allt land eiga þess kost að kynna sig fyrir landsmönnum áður en gengið verður til kosninga þann 16. maí. 15. apríl 2026 09:50 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Grétar Ingi Erlendsson er oddviti D-listans í sveitarfélaginu Ölfusi. Ég heiti Grétar Ingi Erlendsson og starfa sem verkefnastjóri hjá ferðaþjónustufyrirtæki. Ég hef einnig gengt formennsku í Bæjarráði Ölfuss á undanförnum árum. Ég bý ásamt konu minni, Júlíönu Áramannsdóttur og tveimur dætrum, þeim Sólveigu (15 ára) og Kristínu (11 ára) í Þorlákshöfn. Ég er uppalinn í Þorlákshöfn og því Ölfusingur í húð og hár. Ég hef mikla ástríðu fyrir mínu sveitarfélagi og vill sjá það blómstra sem aldrei fyrr. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? Það er, að mínu mati, hvergi betra að vera en hér í Þorlákshöfn en ef ég yrði að velja þá væri ég til í að prófa að búa einhvers staðar fyrir norðan. Húsavík eða Akureyri sem dæmi. Hver er uppáhalds bókin þín? Ég hef mjög gaman af öllu sagnfræði tengdu. Bókin sem kom fyrst í huga er Sapiens, a brief history of humankind eftir Yuval Noah Harari. Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? Fjárfestingar sem tengjast ekki lögbundnum verkefnum sveitarfélagins. Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? Velferðarsvið þá sérstaklega verkefnum sem tengjast snemmtækri íhlutun. Hver væri titill ævisögu þinnar? Hvað ætla ég að verða þegar ég er orðinn stór Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? Hringja ef erindið er brýnt en skilaboð ef það má bíða Með fjölskyldunni á fermingardegi Sólveigar.Aðsend Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? Ég er bara alls ekki viss… Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? Pípulögnum, alltaf eitthvað vesen á þessu og ég veit gjörsamlega ekki neitt um þetta. Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? Ómögulegt að segja til um hvaða ákvörðun verður umdeild eða ekki. Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? Að sannreyna hvort vatnsmelónur væru í raun ber. Kemur ýmislegt upp þegar fjölskyldan er að spila pöbbkviss. Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. Ég hef gert mörg mistök í gegnum ævina, látum það duga Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? Fólkið 😊 Hvað borðar þú í morgunmat? Ekkert Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? Íþyngjandi regluverk af hálfu ríkisins. Ríkið er alltof gjarnt á að festa hluti í lög án þess að kanna haða áhrif það hefur á sveitarfélög. Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? Það er hægt að afreka ansi margt á fjórum árum. Við ætlum t.d. að byggja við grunnskólann, byggja fjölnota íþróttahús og lækka álögur enn frekar. Auðvitað margt fleira en læt þetta duga. Hvert er uppáhalds lagið þitt? All Along the Watchtower með Jimi Hendrix Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? Örugglega fleiri en ein, en mistök eru til að læra af. Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? Big Papa þegar ég var enn að leika körfuknattleik með Þór Þorlákshöfn. Það átti bara eitthvað svo vel við á þeim tíma. Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? Ég mun gera mitt allra besta til að standa við þau öll. Vísir skorar á oddvita stjórnmálaflokka út um allt land að taka þátt í Oddvitaáskoruninni til að kynna sig og sín málefni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda póst á siljars@syn.is. Fyrri Oddvitaáskoranir má skoða á síðunni visir.is/p/oddvitaaskorun.
Vísir skorar á oddvita stjórnmálaflokka út um allt land að taka þátt í Oddvitaáskoruninni til að kynna sig og sín málefni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda póst á siljars@syn.is. Fyrri Oddvitaáskoranir má skoða á síðunni visir.is/p/oddvitaaskorun.
Oddvitaáskorunin Sjálfstæðisflokkurinn Ölfus Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Nú styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar og Vísir stendur sem fyrr fyrir Oddvitaáskoruninni. Oddvitar um allt land eiga þess kost að kynna sig fyrir landsmönnum áður en gengið verður til kosninga þann 16. maí. 15. apríl 2026 09:50 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Nú styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar og Vísir stendur sem fyrr fyrir Oddvitaáskoruninni. Oddvitar um allt land eiga þess kost að kynna sig fyrir landsmönnum áður en gengið verður til kosninga þann 16. maí. 15. apríl 2026 09:50
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“