„Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Lovísa Arnardóttir skrifar 8. apríl 2026 19:58 Perry fannst látinn á heimili sínu eftir að hafa neytt ketamíns sem hann fékk frá Sangha. Samsett Jasveen Sangha, eða Ketamín-drottningin, hefur verið dæmd til fimmtán ára fangelsis fyrir að selja Friends-leikaranum Matthew Perry vímuefni sem hann neytti og leiddu til andláts hans.
Perry fannst látinn í heitum potti á heimili sínu í október árið 2023. Hann hafði glímt við vímuefnafíkn árum saman og var niðurstaða krufningar að hann hefði látist af of stórum skammti af ketamíni. Perry hafði greint frá því að hafa tekið ketamín vegna þunglyndis sem hann glímdi við. Sangha játaði í september í fyrra að hafa dreift og selt ketamíni sem leiddi til þess að Perry lést. Hún játaði einnig að hafa selt öðrum manni, Cody McLaury, ketamín en hann fannst látinn árið 2019, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hafa keypt af henni ketamín. Saksóknarar lýstu heimili SAngha við réttarhöldin sem „eiturlyfja-stórmarkaði“ sem hafi fjármagnað glæstan lífsstíl hennar. Fram hefur komið í fyrri umfjöllun að hún hafi selt ketamín þaðan allt frá árinu 2019 og að viðskiptavinir hennar hafi verið bæði frægir og valdamiklir einstaklingar. Við rannsókn málsins fannst mikið magn af ketamíni á heimili SAngha auk annarra vímuefna. Ketamín er svæfingarlyf sem veldur hugrofseinkennum og getur kallað fram ofskynjanir. Lyfið getur valdið brenglaðri sjón og heyrn og látið notandanum líða eins og hann sé aftengdur eða ekki við stjórn. Lyfið er notað sem deyfilyf fyrir bæði menn og dýr og á aðeins að vera notað af læknum og undir ströngu eftirliti. Lyfið hefur síðustu ár einnig verið vinsælt til notkunar við skemmtun en einnig til að vinna bug á áfengissýki og geðrænum vanda eins og þunglyndi til dæmis. Fram kemur í umfjöllun BBC um dóminn að fyrir dómsuppkvaðningu óskaði Debbie Perry, stjúpmóðir Perrys, eftir því að Sangha myndi fá hámarksrefsingu. Hún sagði hana hafa valdið óafturkræfanlegum skaða í yfirlýsingu sem hún sendi á dómstólinn í dag. „Þú ollir þessu... Þú sem hefur næga hæfileika í viðskiptum til að græða peninga valdir þá einu leið sem særir fólk,“ sagði hún. „Vinsamlegast dæmið þessa hjartalausu konu í hámarksfangelsi svo hún geti ekki skaðað aðrar fjölskyldur eins og okkar.“ Sangha hefur verið í haldi frá því í ágúst árið 2024. Refsing fyrir glæpinn var að hámarki 65 ár en hún var dæmd til fimmtán ára fangelsis. Lögmenn hennar óskuðu þess í mars að dómari myndi ekki dæma hana til hámarksrefsingar, hún hefði tekið ábyrgð á sínum glæpum með því að játa og hefði ekki brotið af sér áður. Sangha er einn fimm einstaklinga, þar á meðal læknir og aðstoðarmaður leikarans, sem bandarísk yfirvöld segja að hafi útvegað Perry ketamín, nýtt sér fíkniefnavanda hans í hagnaðarskyni og leitt til dauða hans af völdum ofskömmtunar. Hinir fjórir hafa einnig fallist á að játa sig seka um ákærur í málinu. Dr. Salvador Plasencia, sem útvegaði leikaranum ketamín vikurnar fyrir andlát hans, var í desember dæmdur í 30 mánaða fangelsi og Mark Chavez, læknir í Kaliforníu sem seldi Perry ketamínið, var dæmdur í átta mánaða stofufangelsi og þriggja ára skilorðsbundið eftirlit.
Erlend sakamál Hollywood Fíkn Bandaríkin Andlát Matthew Perry Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira