Viðskipti innlent

Á­frýja og segja dóminn ekki skýra við­varandi ó­vissu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Í yfirlýsingu segir að áfengissala hafi þegar verið gefin frjáls í fríhöfninni. Myndin er úr safni og er úr verslun ÁTVR.
Í yfirlýsingu segir að áfengissala hafi þegar verið gefin frjáls í fríhöfninni. Myndin er úr safni og er úr verslun ÁTVR. Vísir/Vilhelm

Smáríkið hefur áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í dómi um netsölu áfengis sem féll í gær. Forsvarsmaður segir dóminn rangan og ekki skýra viðvarandi óvissu sem er í áfengissölu á Íslandi. 

Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, var í gær sakfelldur fyrir að hafa selt eina þriggja lítra belju af chardonnay í lok maí í fyrra. Hann hlýtur 100 þúsund króna sekt fyrir brotið. Greiði hann ekki innan fjögurra vikna þarf hann að sæta fangelsisvist í átta daga. Þá var hann dæmdur til að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, 4,9 milljónir króna.

Mikilvægt að fjallað sé um málið á æðri dómsstigum

Í yfirlýsingu frá Smáríkinu segir að þau telji dóminn efnislega rangan og að þau telji mikilvægt að fjallað verði um hann á æðri dómsstigum.

„Dómur héraðsdóms í gær er ekki til þess fallinn að skýra viðvarandi óvissu sem ríkir í áfengislögum. Smáríkið telur að starfsemi félagsins sé í fullu samræmi við gildandi lög og í samræmi við þær reglur sem gilda um sölu áfengis innan EES-svæðisins. Þegar er starfandi fjöldi slíkra fyrirtækja og í tilviki Smáríkisins hafa tugir þúsunda Íslendinga kosið að túlka núverandi löggjöf með sambærilegum hætti. Það sama má segja um aðrar netverslanir,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segir að það liggi nú fyrir að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hafi óskað eftir nánari svörum frá íslenska ríkinu um fyrirkomulag áfengissölu hér á landi.

„Íslenska ríkið hefur nú þegar heimilað sölu á áfengi á framleiðslustað. Einnig hefur áfengissala í Fríhöfninni, stærstu vínbúð Íslands, verið gefin frjáls og nú liggur fyrir Alþingi frumvarp sem er til þess fallið að skýra betur löggjöf um sölu áfengis í gegnum netverslanir,“ segir í yfirskýringunni.

Þar segir að viðskiptavini Smáríkisins megi telja í tugum þúsunda.

„Einstaklingar og forsvarsmenn fyrirtækja kjósa á hverjum degi með hvers konar hætti þeir velja og versla sínar neysluvörur, þar með talið áfengi, sem er lögleg neysluvara. Fyrir liggur að íslenskir neytendur hafa frelsi, í gegnum EES-samninginn, til að versla áfengi í gegnum netverslanir,“ segir að lokum en undir yfirlýsinguna skrifar Vilhjálmur sjálfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×