Grinda­vík - Njarð­vík 2-1 | Deildarmeistararnir taka for­ystuna í ein­víginu

Siggeir Ævarsson skrifar
Frá leik eitt í einvígi Grindavíkur og Njarðvíkur
Frá leik eitt í einvígi Grindavíkur og Njarðvíkur Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Grindavík er komið með 2-1 forystu í einvíginu gegn Njarðvík eftir 97-85 sigur í þriðja leik liðanna. Leikurinn var hnífjafn alveg fram að fjórða leikhlutanum.

Leikurinn var í járnum til að byrja með þar sem Luwane Pipkins skoraði nánast að vild fyrir Njarðvíkinga en undir lok fyrsta leikhluta settu Grindvíkingar Kristófer Breka inn á sem límdi sig á hann og Grindavík lokaði leikhlutanum með góðu áhlaupi og leiddu 32-19.

Njarðvíkingar hófu þá 2. leikhluta á 10-2 áhlaupi meðan að Grindvíkingum gekk illa að skora. Pipkins hélt áfram að salla niður stigum en hann endaði með 30 stig í fyrri hálfleik og klikkaði aðeins úr tveimur skotum. Á sama tíma var þó enginn annar leikmaður Njarðvíkur kominn með meira en fimm stig.

Grindvíkingar enduðu hálfleikinn á flautuþristi frá Jeremy Pargo og staðan 52-48 í hálfleik. Það komu upp nokkur áhugaverð atvik í fyrri hálfleik þar sem menn virtust ætla að missa hausinn og/eða það syði upp úr en allir héldu ró sinni þrátt fyrir hátt spennustig.

Þriðji leikhluti var svo algjörlega í járnum. Bæði lið áttu sína spretti en hvorugu tókst að slíta sig frá og staðan 69-68 fyrir lokaátökin. Lítið skorað í leikhlutanum og Pipkins bætti bara við fimm stigum eftir þessa ótrúlegu frammistöðu í fyrri hálfleik.

Heimamenn mættu mjög einbeittir inn í lokaleikhlutann. Vörnin small og baráttan á báðum endum vallarins til fyrirmyndar. Ragnar Örn Bragason smellti í tvo þrista í röð og kom Grindavík í 77-70. Þeir héldu fætinum á bensíngjöfinni allt til loka þrátt fyrir að Njarðvíkingar hafi gert hetjulega tilraun til að spilla gleðinni undir lokin.

Lokatölur í Grindavík 97-85 og staðan í einvíginu er orðin 2-1.

Nánari umfjöllum og viðtöl á Vísi síðar í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira