Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lovísa Arnardóttir skrifar 10. apríl 2026 16:00 Ný og fráfarandi stjórn. Aðsend Valdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri auðlinda hjá HS Orku, var kjörin formaður Kvenna í orkumálum (KÍO) á síðasta aðalfundi félagsins í vikunni. Valdís tekur við keflinu af Selmu Svavarsdóttur. „
Það eru forréttindi að fá að leiða KÍO einmitt núna,“ segir Valdís Guðmundsdóttir, nýkjörinn formaður KÍO, í tilkynningu. „Það er mikil gerjun í orku- og veitugeiranum og við erum í miðjum orkuskiptum þar sem tækifærin til nýsköpunar og snjallra lausna liggja hvarvetna. Við þurfum bara að koma auga á þau og nýta þau. Viðfangsefnin krefjast þess að við fáum til liðs við okkur lausnamiðað fólk með ólíka sýn og fjölbreyttan bakgrunn“. Valdís tekur við af Selmu. Aðsend Valdís leggur áherslu á að hlutverk KÍO sé að vera raunverulegt hreyfiafl í geiranum. „Með því að gera kvenfyrirmyndir sýnilegri, styrkja tengsl kvenna og bjóða markvissa fræðslu, leggur KÍO sitt af mörkum til að færa okkur í átt að auknu jafnrétti í geiranum. Þannig byggjum við upp fjölbreyttan og kröftugan orkugeira sem er reiðubúinn fyrir verkefni framtíðarinnar.“ Samhliða formannskjörinu var ný og öflug stjórn kynnt. Í nýrri stjórn sitja: Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi hjá Samorku. Hrefna Björg Gylfadóttir, verkefnastjóri innleiðingar stefnu hjá Veitum. Ragnhildur Thorlacius, lögfræðingur hjá Orkuveitunni. Rósa Jakobsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu hjá Landsvirkjun. Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Orkusölunni. Sigurborg Rútsdóttir, verkefnastjóri hjá Rarik. Stefanía Sif Stefánsdóttir, sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis hjá Landsneti. Unnur Ylfa Magnúsdóttir, viðskiptastjóri hjá Landsvirkjun. Valgerður B. Eggertsdóttir, leiðtogi hagaðilatengsla og sjálfbærni hjá Orku náttúrunnar. Fráfarandi formaður, Selma Svavarsdóttir, segist afar ánægð með nýja stjórn félagsins: „Það hefur verið einstaklega gefandi að fá að leiða KÍO og fylgjast með þeim krafti sem býr í félaginu og þeim konum sem taka þátt í starfinu. Ég er líka afar þakklát fráfarandi stjórn, sem hefur með metnaði og ótrúlegri samvinnu lagt mikið af mörkum til að styrkja félagið enn frekar, auka sýnileika þess og sýna enn betur hversu spennandi og fjölbreyttur orkugeirinn er. Áhugi á fjölbreytni og aukinni þátttöku kvenna í orkugeiranum hefur aukist verulega á undanförnum árum og það skiptir máli. Með Valdísi og nýrri stjórn er ég sannfærð um að KÍO muni halda áfram að hafa áhrif og vera mikilvægur vettvangur fyrir konur í geiranum.“
Orkumál Vistaskipti Jafnréttismál Félagasamtök Tengdar fréttir Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Selma Svavarsdóttir, forstöðumaður hjá Landsvirkjun, var kjörin formaður stjórnar Kvenna í orkumálum (KÍO) á aðalfundi félagsins þann 22. apríl. Selma tekur við af Hildi Harðardóttur. 24. apríl 2024 13:02 Hildur nýr formaður Kvenna í orkumálum Hildur Harðardóttir, verkefnisstjóri á sviði Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun, var kjörin formaður Kvenna í orkumálum á aðalfundi félagsins þann 5. maí. Hildur tekur við af Hörpu Pétursdóttur, stofnanda félagsins. 7. maí 2022 11:20 Í beinni: Málþing um mikilvægi kvenna í orkumálum FKA Suðurnes og WIRE Kanada kynna viðburðinn: Empowering Connections: Iceland-Canada Women´s Cooperation in Leading the Charge in Green Renewable Energy. 9. apríl 2024 14:06 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gagnaverafyrirtæki á Blönduósi stefnt vegna hundruða milljóna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira
Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Selma Svavarsdóttir, forstöðumaður hjá Landsvirkjun, var kjörin formaður stjórnar Kvenna í orkumálum (KÍO) á aðalfundi félagsins þann 22. apríl. Selma tekur við af Hildi Harðardóttur. 24. apríl 2024 13:02
Hildur nýr formaður Kvenna í orkumálum Hildur Harðardóttir, verkefnisstjóri á sviði Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun, var kjörin formaður Kvenna í orkumálum á aðalfundi félagsins þann 5. maí. Hildur tekur við af Hörpu Pétursdóttur, stofnanda félagsins. 7. maí 2022 11:20
Í beinni: Málþing um mikilvægi kvenna í orkumálum FKA Suðurnes og WIRE Kanada kynna viðburðinn: Empowering Connections: Iceland-Canada Women´s Cooperation in Leading the Charge in Green Renewable Energy. 9. apríl 2024 14:06