Viðskipti innlent

Eim­skip á­kært vegna sölu tveggja skipa

Eiður Þór Árnason skrifar
Hafnaraðstaða Eimskips við Sundahöfn í Reykjavík.
Hafnaraðstaða Eimskips við Sundahöfn í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Héraðssaksóknari hefur ákært félögin Eimskipafélag Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu á tveimur skipum sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara árið 2020. Skipaflutningafélagið var kært vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs.

Héraðssaksóknari fer fram á að félögin verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Á sama tíma hefur embættið fellt niður rannsókn á Hilmari Pétri Valgarðssyni, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Eimskips, í tengslum við sama mál.

Þetta kemur fram í tilkynningu Eimskips til Kauphallar og er félagið sagt hafa fengið upplýsingar um þetta í dag. Hilmar hafi því ekki lengur réttarstöðu sakbornings. 

Lýsa yfir sakleysi

Stjórnendur Eimskips telja félagið hafa fylgt lögum og reglum við sölu skipanna. Fullyrt er að þau hafi verið seld til áframhaldandi rekstrar en ekki til endurvinnslu.

Málið má rekja til sölu skipanna Laxfoss og Goðafoss. Umhverfisstofnun kærði Eimskip eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um örlög skipanna eftir að þau voru seld. Þar kom fram að skipin hafi endað í skipaendurvinnslustöðvum á Indlandi við einn stærsta skipakirkjugarð heims.

Í umfjöllun Kveiks hélt forsvarmaður Shipbreaking Foundation, samtaka sem berjast fyrir því að tryggt sé að skipum sé fargað á öruggan og umhverfisvænan hátt, því fram að Eimskip hefði brotið evrópska úrgangslöggjöf þegar skipin voru seld til fyrirtækis að nafni GMS.

Eimskip baðst í kjölfarið afsökunar á því að hafa ekki gert „ríkari kröfur“ til kaupanda skipanna tveggja.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Gerðu húsleit vegna rann­sóknar á sölu tveggja skipa Eim­skips

Embætti héraðssaksóknara gerði í dag húsleit á aðalskrifstofu Eimskipafélagsins. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaskóknari í samtali við Vísi. Embættið fékk úrskurð til húsleitar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og óskaði eftir afmörkuðum gögnum vegna sölu skipanna Goðafoss og Laxfoss á árinu 2019 sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara 2020.

Eimskip staðfestir kæru en hafnar ásökunum

Umhverfisstofnun hefur kært Eimskip til embætti Héraðssaksóknara vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs. Félagið hafnar ásökunum um að hafa brotið lög við sölu á skipunum Goðafossi og Laxfossi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×