Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Jakob Bjarnar skrifar 14. apríl 2026 13:35 Ari Edwald hefur aldrei fengið eins mikil viðbrögð við myndbandi og núna, 180 þúsund manns hafa séð myndbandið það sem af er. Sýn Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, segir að myndband sitt, þar sem hann keyrir um göngugötu í miðborg Reykjavíkur og finnur ekkert stæði, hafi kallað fram sprengju í viðbrögðum; 180 þúsund manns hafa horft á myndbandið – Ari segir að svo virðist sem fólk hafi hreinlega beðið eftir því að einhver léti sig þetta varða.
Myndbandið hefur valdið nokkrum usla í tengslum við komandi kosningar í borginni en gengið verður til atkvæða í sveitarstjórnarkosningum eftir tæpan mánuð, þær eru á dagskrá 16. maí næstkomandi. En það er vitaskuld ekki svo að einskær ánægja sé með myndbandið. Það hefur orðið að eins konar „meme“ á netinu þar sem pólitískir andstæðingar vilja gera grín að Ara. Ari lætur þetta ekki slá sig út af laginu. „Fólk áttar sig vonandi á því að það er í Kópavoginum?“ segir Ari um myndina þar sem hann er kominn á bílnum inn í Smáralindina og hlær. Hann segir bara gaman að þessu, þetta veki athygli á málefninu og það sé einmitt tilgangurinn með þessu sem hann kallar heimildarvídeó. Gríðarleg viðbrögð við myndbandinu Það hefur nú þegar fengið gríðarlegt áhorf. „Í símanum mínum segir að vídeóið hafi fengið 180 þúsund áhorf! Mest á Facebook en þar hafa 150 þúsund horft og restin á TikTok. Þegar þetta kom út á miðvikudag í síðustu viku var ég upptekinn langt fram á nótt að tala við fólk sem hafði samband við mig beint. Og þar lýstu 99 prósent sig gríðarlega ánægð, fögnuður yfir því að loksins væri einhver sem vildi gera eitthvað í þessu rugli og ætlar að laga þetta.“ Ari leggur áherslu á að ekki sé bara verið að tala um þennan litla blett í miðborginni heldur miklu stærra svæði. „Ég hef verið í sambandi við þá sem eftir eru, flesta, sem standa fyrir atvinnustarfsemi á Laugavegi, menn sem hafa verið í þessu í áratugi. Þetta eru menn sem voru ánægðir með breytingar sem gerðar voru á Laugavegi, einstefnu niður Laugaveg, en þá voru gerðar breytingar á nokkrum árum sem fækkaði stæðunum,“ segir Ari. Helsta ástæðan fyrir því að fólk er hætt að sækja miðborgina Hann segir réttlætanlegt að setja hindranir í stæði á góðviðrisdögum en verra sé þetta yfir vetrarmánuðina þegar enginn situr fyrir utan veitingastaðina. Það er mikil óánægja með það. „Þetta er ein helsta ástæðan fyrir því að fólk er hætt að sækja í miðbæinn og leitar annað.“ Ari segir viðskiptaaðila kvarta og sumir þeirra séu jafnframt með viðskipti í Kringlunni og Smáralind og geti einfaldlega sýnt fram á þetta með tölulegum staðreyndum. Hann segir þetta koma frá góðum stað, frá fólki sem ann miðborginni og vill henni allt það besta. En nú hafa menn meðal annars sett út á það að þú hafir ekki verið með belti þegar þú varst að aka þarna um? „Sko, við vorum með fjögurra manna teymi að gera myndbandið. Þau fylgdu mér eftir á gönguhraða. Eru menn ekki farnir að rýna helst til mikið í smáatriði í tengslum við þetta?“ spyr Ari. Hann segir að þremur manneskjum bregði fyrir í myndbandinu en það sé vel að merkja eina fólkið sem þau sáu meðan þau voru að taka. „Er þetta virkilega orðið svona, eins og klukkan fimm eða sex um nótt? Það kom mér mjög á óvart að það var ekkert líf í miðbænum og nánast enginn á ferli.“ Nagladekk enn leyfð Önnur atriði sem menn hafa viljað fetta fingur út í er notkun á nöglum. Ari segir það rétt, það hafi hvinið vel í nöglunum á hellulögninni. „Þau eru nú farin undan bílnum, þrátt fyrir annríki. Það var í forgangi strax í gærmorgun að kaupa ný sumardekk sem virka svona ljómandi vel. En menn verða að athuga að það er ekki fyrr en á morgun sem nagladekk eru formlega ekki leyfilegur öryggisbúnaður. Og eins og þú þekkir er það sveigjanlegur tími, þegar von er á hálku og slíku, ef fólk er til að mynda að fara norður.“ Ari segir að hvað sem mönnum kann að finnast um nagla sé ástæða fyrir því að margir treysti sér ekki til að keyra án þeirra. „Ég held að þeir sem hafa viljað gera athugasemd við þetta hafi áttað sig á því að þeir fóru aðeins fram úr sér með það.“ Fólk vill breytta stefnu Ari telur viðbrögð fjölmargra við myndbandinu til marks um að fólki sé gersamlega ofboðið varðandi stefnu borgarinnar sem Ari segir einkennast af hatri gegn einkabílnum. „Þetta var bara eins og að henda út flugu. Ég hef verið að gera myndbönd og verið mest að fá 45 þúsund kannski, og svo allt í einu búmm. 180 þúsund manns. Þessi mál eru þau sem eru kornið sem fyllir mælinn hjá fólki. Það er búið að fá nóg af þessari ofstjórn gagnvart fólki sem ferðast í bílum, sem á sér alls staðar stað, með þrengingum og takmörkunum og hreinu og kláru hatri í garð einkabílsins. Bílarnir eru ekki að fara neitt, fólkið sem velur sér þennan ferðamáta. Við búum á þeirri breiddargráðu að það er ekki annað í boði. Það er veruleiki flestra.“ En hvað með þá ábendingu að þarna séu fjölmörg bílastæðahús? „Það er alveg rétt, en þau bílastæði hafa ekki verið byggð ein og sér heldur hafa þau verið hluti af framkvæmdum sem hafa aukið byggingarmagn um tugi þúsunda fermetra. Ný bílastæði eru ekkert umfram það sem byggingarframkvæmdir hafa kallað á.“
Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfélagsmiðlar Göngugötur Reykjavík Tengdar fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Í samfélagsmiðlagjörningi ekur Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, niður Austurstræti þar sem hann furðar sig á því að þar séu engin bílastæði. Austurstræti hefur verið göngugata síðan í september og því er ólöglegt að aka bíl niður götuna, sem Miðflokksmaðurinn gerir þó. 12. apríl 2026 20:43 Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Sjá meira
Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Í samfélagsmiðlagjörningi ekur Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, niður Austurstræti þar sem hann furðar sig á því að þar séu engin bílastæði. Austurstræti hefur verið göngugata síðan í september og því er ólöglegt að aka bíl niður götuna, sem Miðflokksmaðurinn gerir þó. 12. apríl 2026 20:43