Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Birgir Olgeirsson skrifar 17. apríl 2026 11:49 Norræna við bryggju í Seyðisfirði. Jóhann k. Einn hefur verið úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á miklu magni af fíkniefnum með Norrænu í lok mars. Lögregla heldur þétt að sér spilunum varðandi efnisatriði málsins. Verð á kókaíni hefur farið hækkandi undanfarin ár.
Maðurinn var handtekinn 27. mars eftir að umtalsvert magn fíkniefna fannst í sendiferðabíl sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar. Hann var fyrst úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, til 10. apríl, en í síðustu viku var varðhaldið framlengt til 8. maí. Hann er vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði. Lögreglan á Austurlandi hefur ekki gefið upp hvorki tegund efnis né magn. Ríkisútvarpið greindi hins vegar frá því að um 45 kíló af kókaíni væri að ræða, sem er mesta magn kókaíns sem tekið hefur verið hér á landi. Upp kom stórt kókaínmál á Íslandi árið 2022 þegar gerð var tilraun til að smygla 100 kílóum af kókaíni. Efnin voru haldlögð í Hollandi og skipt út fyrir gerviefni. Þungir dómar féllu í málinu. Óljóst er um styrkleika efnanna sem fundust en gangvirði kókaíns hefur farið hækkandi undanfarin ár og er í dag um 20 til 25 þúsund krónur á grammið. Því gæti götuvirði efnanna sem fundust verið um 900 milljónir til 1,1 milljarður króna, eða jafnvel meira. Málið kemur í kjölfar metárs 2025 þegar hald var lagt á 106 kíló af kókaíni hér á landi. Með málinu sem kom upp í mars í ár stendur magnið í 151 kílói, sem samsvarar um 3 til 3,7 milljörðum króna miðað við sömu forsendur og raktar voru áður. Við rannsókn málsins naut lögreglan á Austurlandi aðstoðar Landhelgisgæslunnar, sérsveitar ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Fíkniefnabrot Norræna Lögreglumál Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira