Innlent

Meiri­hlutinn fallinn sam­kvæmt nýrri könnun

Eiður Þór Árnason skrifar
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í borginni.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í borginni. Vísir/Vilhelm

Meirihlutinn er fallinn í borginni ef marka má nýja könnun Gallup. Stór hluti svarenda gaf ekki upp afstöðu sína eða kaus að skila auðu. Vinstrið er með sterka innkomu. 

Miðflokkurinn og Viðreisn bæta töluvert við sig á meðan Framsókn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn taka á sig högg. Vinstrið, nýtt sameinað framboð VG og Vors til vinstri, mælist með 13,5% fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Miðflokkurinn mælist með 10,7% en var með 2,4% atkvæða í kosningunum 2022. Viðreisn tvöfaldar fylgi sitt.

Samkvæmt könnuninni kysu tæplega 28% Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til kosninga í dag, rúmlega 23% Samfylkinguna, rösklega 13% Vinstrið, næstum 11% Miðflokkinn, slétt 10% Viðreisn, nær 4% Framsóknarflokk og Flokk fólksins, ríflega 3% Pírata, tæplega 3% Sósíalistaflokk Íslands og rösklega 1% Okkar borg.

Miklar breytingar eru frá síðustu kosningum. Gallup

Jafnframt kemur fram í tilkynningu Gallup að nærri 8% svarenda myndu skila auðu og 18% tóku ekki afstöðu eða vildu ekki gefa hana upp, samanlagt um fjórðungur svarenda.

Meirihlutinn fallinn

Miðað við þessa niðurstöðu fengi Sjálfstæðisflokkur sjö borgarfulltrúa, Samfylkingin sex fulltrúa, Vinstrið og Miðflokkur þrjá fulltrúa hvor, Viðreisn tvo fulltrúa og Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins sinn hvorn fulltrúann, samkvæmt útreikningum Gallup. 

Þannig fengju Samfylkingin, Vinstrið, Flokkur fólksins og Píratar sem mynda sitjandi meirihluta samtals tíu borgarfulltrúa og næðu ekki þeim tólf sem þyrfti til að mynda meirihluta. Munar þar um tvo fulltrúa Pírata sem detta út en einn þeirra gekk til liðs við Samfylkinguna á yfirstandandi kjörtímabili.  

Spurt var „Ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?“  og „En hvaða flokk eða lista er líklegast að þú myndir kjósa?“

Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 15. apríl 2026. Heildarúrtaksstærð var 2.138 og þátttökuhlutfall 40,1%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,9 til 3,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×