Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. apríl 2026 10:30 Markaveislur voru haldnar víða um land í gær. vísir Heil umferð fór fram í Bestu deild karla í gær og mörkin úr leikjunum sex má sjá hér fyrir neðan.
Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Valur sigraði ÍBV 2-1 á N1-vellinum á Hlíðarenda í spennandi leik þar sem sigurmarkið kom í síðari hálfleik. Bæði lið ætluðu sér sigur í leik sem einkenndist af baráttu og ákefð. Hólmar Örn og Lúkas Logi með mörk Valsmanna en Felix Örn skoraði mark Eyjamanna. Klippa: Valur - ÍBV 2-1 KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ KR er efst í deildinni eftir 5-2 sigur gegn nýliðum Þórs frá Akureyri. Amin Cosic kom KR yfir eftir frábæra fyrirgjöf Finns Tómasar Pálmasonar á tólftu mínútu og Eiður Gauti Sæbjörnsson skallaði boltann inn til að tvöfalda forystuna eftir rúmlega hálftíma leik. Luke Rae átti ekki sinn besta leik í fyrstu umferðinni en hann skoraði þriðja mark KR strax í byrjun síðari hálfleiks með vinstri fótar skoti úr teignum eftir góðan sprett upp hægri kantinn. Hann bætti þar marki við stoðsendingu á Eið Gauta fyrr í leiknum. Fyrirliðinn Aron Sigurðarson skoraði fjórða markið á 70. mínútu úr víti sem hann fiskaði sjálfur. Ástbjörn Þórðarson var einn og yfirgefinn og skallaði boltann í markið eftir horn fimm mínútum eftir það og staðan 5-1 fyrir KR. Isaac Atanga skoraði svo sárabótamark fyrir Þór í blálokin en KR hafði fengið færi til að skora sjötta markið fyrr í uppbótartímanum. Klippa: KR - Þór Ak. 5-2 KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum Víkingur sótti góðan 2-0 útisigur gegn KA norður til Akureyrar í annarri umferð Bestu deildar karla. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr víti áður en Elías Már Ómarsson tryggði sigurinn endanlega. Klippa: KA - Víkingur 0-2 Fram-Keflavík 3-1 | Vuk kom, sá og sigraði Fram lagði Keflavík 3–1 í annarri umferð Bestu deildar karla á Lambhagavelli. Vuk Oskar Dimitrijevic braut ísinn á 11. mínútu með glæsilegu skoti í fjærhornið. Fram jók forystuna snemma í síðari hálfleik þegar Vuk Oskar skoraði sitt annað mark á 49. mínútu eftir gott einstaklingsframtak. Keflavík minnkaði muninn á 79. mínútu þegar Eiður Orri Ragnarsson skoraði og kveikti smá spennu í lokin en í uppbótartíma innsiglaði Bjarni Páll Linnet Runólfsson sigur Fram með glæsilegu marki úr skoti utan teigs og tryggði 3–1 sigur. Klippa: Fram-Keflavík 3-1 Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Blikar unnu 1-0 sigur eftir að hafa staðist stórsókn Skagamanna sem höfðu heppnina ekki með sér upp við mark Blika. Höskuldur Gunnlaugsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Klippa: Breiðablik - ÍA 1-0 Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist gulls ígildi Stjarnan bar sigurorð af FH, 3-2. Andri Rúnar Bjarnason skoraði sigurmark Stjörnunnar. Klippa: Stjarnan - FH 3-2
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Fram KA KR Þór Akureyri ÍBV Valur ÍA Breiðablik Keflavík ÍF FH Stjarnan Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira