Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. apríl 2026 13:03 Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Samsett Mynd Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík vill takast á við mönnunarvandann í leikskólum borgarinnar með fjárveitingu upp á mörg hundruð milljónir en oddviti Sjálfstæðisflokksins bendir á áð íslenskt leikskólakerfi sé þegar mjög kostnaðarsamt. Tekist var á um málið í Sprengisandi.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í komandi sveitarstjórnarkosningum, tókust á um leikskólamál borgarinnar í Sprengisandi í morgun. Meðal áforma Samfylkingarinnar er lögfesting leikskólastigsins. „Við höfum rætt leikskólamálin oft og ekki að ástæðulausu. Ég sé að Samfylkingin leggur til að leikskólinn verði lögfestur á Íslandi og mér finnst það svona frekar ódýrt útspil eins og það eigi að vera einhver lausn á leikskólavandanum. Það er ekki verið að ráðast að rót vandans. Stóri vandinn í leikskólamálum er þessi mönnunarvandi,“ segir Hildur. Hún bendir á að það vantaði 2600 leikskólakennara á Íslandi til að svara eftirspurn og til að samræmast lögum sem segja að tveir þriðju leikskólastarfsmanna eigi að vera fagmenntaðir. Hins vegar útskrifist að meðaltali áttatíu manns ár hvert. „Ég var nú að leita að gögnum um hvað það eru margir en segjum okkur að það séu fjörutíu manns á ári sem hætta sökum aldurs. Ég hugsa að það séu fleiri. Miðað við þessa tölfræði, ef um áttatíu manns útskrifast úr náminu og fjörutíu sem hverfa á brott sökum aldurs værum við 65 ár að ná að mennta nægilega marga til að standa undir þörfinni.“ Pétur segist sammála Hildi um að lögfesting leikskólavistar muni ekki leysa öll vandamál en til að mynda sé hægt að líta til nýrrar Reykjavíkurleiðar til að losna við mönnunarvandann „Hún er að mörgu leyti mjög góð og áhugaverð og ég held að leikskólakennarar hafi verið ánægðir með þetta og það sýnir sig núna bara strax að hún var tekin í notkun núna bara í byrjun mánaðarins og foreldrar byrjuðu á að skrá börnin sín þannig að fyrirsjáanleikinn um hvenær börn eru á leikskólanum var strax betri fyrir starfsemi leikskólanna,“ segir Pétur. Hann telur að ekki sé nægilega mikil virðing fyrir fyrsta skólastigi barna og slík viðurkenning muni bæta það til muna. Dýrt leikskólakerfi Pétur nefnir að eitt af markmiðum Samfylkingarinnar verði að setja sex hundruð milljónir króna í mönnun. Ekki sé nægur tími til að bíða eftir því að manna alla leikskóla með menntuðum leikskólakennurum og sé það í raun óraunhæft að tveir þriðju starfandi á leikskólum séu menntaðir sem slíkir. „Þannig að það er það frábæra fólk sem er að vinna í leikskólum sem er að vinna í leikskólum sem er ekki með þessa menntun, kannski með einhverja aðra menntun, fyllist upp í. Þannig að við þurfum bara að fullmanna leikskólana og ég hef ítrekað það að þegar leikskólarnir eru fullmannaðir þá verður minna um veikindaleyfi og meiri ánægja ríkir hjá starfsfólki,“ segir hann. Kristján Kristjánsson, þáttastjórnandi Sprengisands, bendir á að sex hundruð milljónir sjái fyrir launakostnaði áttatíu leikskólakennara. Pétur tekur fram að samhliða því verði einnig sett aukið fjármagn í viðhald og uppbyggingu nýrra leikskóla. „Við erum að stefna á, að minnsta kosti, fimmtán hundruð ný pláss á þessu kjörtímabili. Þetta er bara mikilvægt, þetta er bara fyrsti fókusinn hjá okkur. Við verðum að leysa þessi mál,“ segir Pétur. Hildur bendir á að leikskólakerfum á Norðurlandi sé það íslenska þegar dýrast. „Við greiðum hæstu launin. Við erum með lengsta námið, við erum með fimm ára háskólanám, ólíkt nágrannaþjóðunum. Við erum með lengri undirbúningstíma, við erum með fleiri starfsmenn per barn. Við erum bara búin að búa til rosalega dýrt og flókið kerfi. Og þetta er kannski ekkert vinsælt sem ég er að segja, sem ég er að fara að segja núna, en það voru mistök,“ segir hún. Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér en til dæmis var deiliskipulag Suðurlandsbrautar einnig tekið fyrir.
Leikskólar Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sprengisandur Borgarstjórn Bylgjan Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Sjá meira