„Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Agnar Már Másson skrifar 20. apríl 2026 23:40 „Ég er dreginn inn í einhverja umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir,“ segir Sigurður, eða Siggi Delux, í samtali við Vísi. Lögregla hefur fellt niður rannsókn á Sigurði Sindra Magnússyni athafnamanni í tengslum við meint kynferðisbrot á Akureyri. Hann segist ekki myndu óska neinum þess að vera ranglega bendlaður við kynferðisbrot en Sigurður hefur síðasta mánuðinn setið undir aðkasti á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt er að hann sé nauðgari. Hann segist aðeins hafa leigt húsnæði þar sem meint brot átti sér síðan stað og því hafi hann verið boðaður í skýrslutöku við upphaf lögreglurannsóknar. Að öðru leyti komi hann ekki nálægt málinu. „
Ég er náttúrulega bara húsráðandi í samkvæmi þar sem þetta fólk kemur saman,“ segir Sigurður í samtali við Vísi en hann var meðal þeirra þriggja sem lögreglan á Akureyri handtók í byrjun mars í tengslum við meint kynferðisbrot gegn konu á þrítugsaldri. Rannsókn lögreglu á málinu er lokið en ákæra hefur ekki verði gefin út, að því er fram kom í frétt Rúv í síðustu viku. Þar var þó haft eftir lögreglu að fleiri en einn hefðu enn stöðu sakbornings í málinu. Lögregla tjáði samt Sigurði á föstudag að hún hefði fellt niður rannsókn hvað hann varðaði, samkvæmt bréfi sem Vísir hefur fengið að sjá. Ekki þótti grundvöllur til að halda rannsókninni á Sigurði áfram. Sigurður Sindri Magnússon er eigandi Deluxe Iceland.Skjáskot/Facebook Ekki liggur fyrir hvort hinir tveir sem handteknir voru á Akureyri verði ákærðir, en annar þeirra er áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson, öðru nafni þekktur sem Kleini. Frá því að málið spurðist út hafa tvær fyrrverandi kærustur Kleina tjáð sig um ofbeldi af hans hálfu. Sigurður segist við Vísi ekkert þekkja Kleina. Hann útskýrir að hann hafi verið í skíðaferð með félögum sínum þessa helgi, tekið íbúð í bænum á leigu og haldið þar samkvæmi sem Kleini hafi sótt — og þar sem meint brot mun hafa átt sér stað. Þetta skipti, aðfaranótt 8. mars, hafi verið í fyrsta sinn sem hann hafi hitt Kleina. Hann hafi aðeins verið tekinn í skýrslutöku vegna þess að hann hafi verið húsráðandinn og að litlar sem engar upplýsingar hefðu legið fyrir um meint brot þegar það var tilkynnt til lögreglu. Brotaþoli hafi ekki þekkt nöfn á gerendum Eva Hauksdóttir, lögmaður konunnar, útskýrir við Vísi að þegar brotaþoli hafi tilkynnt brotið til lögreglu hafi hún ekki þekkt nöfn á þeim sem hún taldi hafa brotið á sér. Því hafi lögregla aðeins getað hafið rannsókn út frá þeim takmörkuðu gögnum sem lágu fyrir. Eva kveðst lítið getað tjáð sig um málið frekar enda eigi lögregla enn eftir að gefa út hvort ákært verði í málinu eða ekki. „Engin bein leið til að stjórna því“ Bróðir Sigurðar, Kristinn Sævar, birti í dag færslu á Facebook að því tilefni að rannsókn lögreglu á Sigurði er lokið. Kristinn gagnrýnir þar hinn margumtalaða „dómstól götunnar“ en tekur einnig fram að að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að Sigurður hafi með nokkrum hætti tekið þátt í meintu broti. Þrátt fyrri það hafi fólk gengið út frá því að hann væri sekur um nauðgun og orðrómurinn fengið að ganga óáreittur með tilheyrandi afleiðingum. Sigurður segist í samtali við Vísi vera miður sín yfir því að gróusögur hafi fengið að grassera á samfélagsmiðlum síðasta mánuðinn þar sem hann er bendlaður við meinta nauðgun. Hann segist þó sáttur að staðreyndir málsins liggi loksins fyrir. Kristinn, bróðir hans, birti á annan tug skjáskota af samfélagsmiðlum þar sem fólk fullyrðir ýmist undir nafni eða nafnlaust að Sigurður sé nauðgari, bæði í ummælakerfum og í færslum á samfélagsmiðlum. Sigurður hafði verið bendlaður við meinta nauðgun víðsvegar á samfélagsmiðlum. Skjáskot/Facebook „Ég er dreginn inn í einhverja umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir,“ segir Sigurður við Vísi. „Svo náttúrulega bara fer umræðan af stað og það er engin bein leið til að stjórna því.“ Hann hafi í mars kosið að tjá sig ekki opinberlega um málið, en á meðan hann þagði sat hann undir umtalsverðu aðkasti á samfélagsmiðlum. Sigurður, sem rekur ferðaþjónustufyrirtæki, segir að fólk hafi jafnvel áreitt starfsmenn sína, með þeim afleiðingum að þeir hafi hætt störfum. Fólk í hans innsta hringur hafi einnig verið sett í erfiða stöðu, þar sem því væri gjarnan stillt upp við vegg og látið taka afstöðu með eða á móti honum, þrátt fyrir að lítil sem engin gögn lægju fyrir. Fjöldi fólksbendluðu Sigga og jafnvel fyrirtæki hans við verknaðinn.Skjáskot/Facebook „Það var gífurlegt áreiti,“ segir Sigurður. „Gífurlegt áreiti á alla, og líka bara pressa á fólk að taka afstöðu í málinu.“ Vonar að samfélagið geri betur „Ef einhver er að setja svona út í umræðuna þá bera þeir ábyrgð á því,“ segir Sigurður, sem vonast til þess að samfélagið dragi lærdóm af þessu máli. Hann segist ekki myndu óska þessari upplifun neinum. „Mér finnst við bara eiga að gera betur sem samfélag,“ bætir hann við. Hann er þó sáttur við að geta einbeitt sér að fullu að rekstrinum að nýju. „Ég vissi náttúrulega nákvæmlega að staðreyndirnar í þessu máli myndu koma í ljós,“ bætir hann við. Sem fyrr segir er rannsókn lögreglu lokið, um mánuði eftir að meint brot áttu sér stað, en lögregla á enn eftir að gefa út hvort hinir tveir verði ákærðir í málinu.
Akureyri Kynbundið ofbeldi Kynferðisofbeldi MeToo Lögreglumál Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira