Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Samúel Karl Ólason skrifar 21. apríl 2026 23:03 Donald Trump forseti, Pete Hegseth varnarmálaráðherra og Dan Cain formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna. AP/Mark Schiefelbein Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í dag fjárlagatillögu ríkisstjórnar Donalds Trump varðandi varnarmál og vill ríkisstjórnin að þingið verji 1,5 billjón dala til varnarmála á næsta ári. Það myndi þýða um 42 prósenta aukningu á milli ára. Ekki er talinn með aukafjárveitingarbeiðni vegna stríðsins gegn Íran, sem gæti hljóðað upp á tvö hundruð milljarða dala.
Ein og hálf billjón dala samsvarar um um 184 billjónum króna (tólf núll). Verði þingið við beiðni ríkisstjórnarinnar yrði um umfangsmestu fjárútlát Bandaríkjanna til varnarmála í sögunni, þó tillit sé tekið til verðbólgu. Landsframleiðsla Íslands í fyrra var tæpar fimm billjónir króna. Í yfirlýsingu ráðuneytisins segir að um sé að ræða fjárfestingu sem ætlað sé að leysa úr viðjum hið bandaríska „vopnabúr frelsisins“. Rúmum helmingi fjárveitingarinnar stendur til að verja í að auka og bæta hergagnaframleiðslu. Sérstaka áherslu á að leggja á dróna en til stendur að þrefalda fjárveitingum þeim tengdum. Einnig á að fjárfesta í loftvarnarkerfum og framleiðslu á flugskeytum fyrir þau og herþotum, auk þess sem bæta á framleiðslugetu Bandaríkjanna á herskipum. Vísað er til framleiðslu nýrra orrustuþota, sem bera nafnið F-47 (Donald Trump er 47. forseti Bandaríkjanna), nýrra sprengjuþota sem heita B-21 og gullflotans svokallaða sem til stendur að mynda. Sjá einnig: Boeing fær að smíða orrustuþotur framtíðarinnar Haft er eftir Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, að fjárfestingin muni festa í sessi yfirburði herafla Bandaríkjanna til næstu áratuga. Hann segir fyrrverandi ríkisstjórnir hafa undirfjármagnað herafla ríkisins á sama tíma og óvinir Bandaríkjanna hafi styrkst. AP fréttaveitan hefur eftir embættismönnum úr varnarmálaráðuneytinu að fjárlagabeiðnin hafi að mestu verið samin áður en átökin milli Bandaríkjanna og Ísrael annarsvegar og Írana hins vegar hófust. Embættismennirnir sögðu ekki hvað ráðuneytið vildi fá í aukafjárveitingu vegna stríðsins gegn Íran. Í síðasta mánuði gaf Hegseth til kynna að upphæðin gæti verið um tvö hundruð milljarðar dala en tók fram að það gæti breyst. Þá kom fram í kvöld að forsvarsmenn sjóhers Bandaríkjanna vildu kaupa 785 Tomahawk stýriflaugar en áður hafði komið fram að þeir vildu eingöngu 55 slíkar flaugar. Fjölmargar stýriflaugar af þessari gerð hafa verið notaðar til árása í Íran en ólíklegt er að framleiðsla þeirra sé nægjanleg til að anna þessar eftirspurn á næsta ári. Vilja meira fyrir minna Einn liður í áðurnefndri fjárfestingu í hergagnaframleiðslu snýr að því að auka framleiðslu einfaldra og ódýrari vopna. Yfirmaður fjármála flughers Bandaríkjanna sagði í kvöld að innan þess hluta heraflans vildu menn hætta að leggja of mikla áherslu á framleiðslu fárra kostnaðarsamra en mjög góðra vopna og þess í stað geta framleitt meira af hefðbundnari vopnum. Það hefur sýnt sig í átökunum í Úkraínu að getan til að framleiða mikið af skotfærum og hergögnum fyrir eins lítinn pening og hægt er skiptir miklu máli. Fjárlagabeiðnin inniheldur einnig áætlanir um að kaupa átján ný herskip fyrir rúma 65 milljarða dala en það er um 46 prósenta aukning milli ára. Beiðnin inniheldur ekki fjárveitingar til nýs herskips sem bera á nafn Trumps. Sú beiðni verður víst lögð fram á næsta ári.
Bandaríkin Donald Trump Hernaður Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Sjá meira