Með lista yfir góða og slæma bandamenn Samúel Karl Ólason skrifar 23. apríl 2026 12:01 Donald Trump er verulega ósáttur við marga af bandamönnum Bandaríkjanna þessa dagana. AP/Alex Brandon Innan Hvíta hússins hefur hafa verið samdir listar um bandamenn sem forsvarsmönnum ríkisstjórnar Donalds Trump finnast vera góðir bandamenn annars vegar og slæmir bandamenn hins vegar. Til stendur að leita leiða til að refsa þeim bandamönnum Bandaríkjanna innan Atlantshafsbandalagsins og sérstaklega þeim sem hafa ekki viljað standa við bak Bandaríkjamanna vegna stríðsins gegn Íran.
Meðal annars tekur ríkisstjórnin einnig tillit til fjárútláta til varnarmála og eru bandalagsríkin sett í sérstaka flokka á listunum, samkvæmt heimildarmönnum Politico, sem þekkja til þeirra. Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, mun heimsækja Hvíta húsið seinna í þessum mánuði en listarnir hafa verið samdir í aðdraganda þeirrar heimsóknar. Rutte fundaði með Trump fyrr í þessum mánuði en þá er forsetinn sagður hafa orðið reiður og hótað NATO-ríkjum hefndaraðgerðum, þar sem þau hafi ekki viljað taka þátt í stríðinu gegn Íran og sérstaklega því að opna á siglingar um Hormússund á nýjan leik. Sjá einnig: Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Hugmyndin að listunum er sögð koma frá Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, en í desember sagði hann að góð bandalagsríki myndu njóta þeirrar stöðu en aðrir myndu mæta afleiðingum. Evrópskur embættismaður sagði Trump-liða ekki vilja segja hverjir væru á listunum né varpa ljósi á það hvernig góðum bandamönnum yrði hampað og slæmum refsað. „Þeir virðast ekki hafa mjög formfastar hugmyndir þegar kemur að því að refsa bandamönnum,“ sagði annar evrópskur heimildarmaður Politico. „Þeir geta flutt hermenn á brott en það kemur aðallega niður á þeim sjálfum er það ekki?“ Ítrekað gagnrýninn á NATO Trump hefur margsinnis haldið því fram frá því hann tók aftur við embætti að bandalagsríki Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu geri lítið sem ekkert fyrir Bandaríkin. Hann gaf til að mynda nýlega til kynna að framtíð NATO væri í húfi, ef þessi ríki myndu ekki koma Bandaríkjamönnum til aðstoðar við að opna sundið og halda því opnu. Það hefur ekki gerst. Bandaríkjamenn vörðu nokkrum vikum í undirbúning fyrir árásirnar á Íran en Trump hefur krafist þess að ríki í Evrópu og bandalagsríki í Asíu sendi herskip og herafla á svæðið án undirbúnings, til að opna Hormússund aftur. Samskipti Trumps við ráðamenn í Evrópu og víðar hafa farið hratt versnandi á seinna kjörtímabili hans. Fyrir því eru ýmsar ástæður og má meðal annars nefna árásir hans í garð Grænlands, beitingar hans á tollum og persónulega gagnrýni hans í garð þjóðarleiðtoga.
Bandaríkin Donald Trump NATO Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. Bandaríkjaforseti segir það breyta engu fyrir sig hvort friðarsamkomulag náist við Íran. 11. apríl 2026 21:15 Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sótti fund með Bandaríkjaforseta til að tala gegn því að Bandaríkin gangi úr bandalaginu. Forsetinn hefur gagnrýnt bandalagið ítrekað, sem hafi snúið baki við bandarísku þjóðinni, og íhugar að ganga úr því. 9. apríl 2026 07:45 Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um eiginkonu sína „hvorki smekkleg né viðeigandi“ en Trump gerði sér upp franskan hreim og gerði grín að frönskum starfsbróður sínum og eiginkonu hans í einkahádegisverði í Washington. 2. apríl 2026 15:18 „Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Donald Trump segir að þau ríki heims sem skorti eldsneyti vegna lokunar Hormússunds og hafi neitað að aðstoða Bandaríkin í stríðinu gegn Íran, standi ein. Forsetinn nefnir Bretland sérstaklega og segir að Bandaríkin verði ekki lengur til staðar fyrir þessi ríki. 31. mars 2026 12:53 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira
Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. Bandaríkjaforseti segir það breyta engu fyrir sig hvort friðarsamkomulag náist við Íran. 11. apríl 2026 21:15
Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sótti fund með Bandaríkjaforseta til að tala gegn því að Bandaríkin gangi úr bandalaginu. Forsetinn hefur gagnrýnt bandalagið ítrekað, sem hafi snúið baki við bandarísku þjóðinni, og íhugar að ganga úr því. 9. apríl 2026 07:45
Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um eiginkonu sína „hvorki smekkleg né viðeigandi“ en Trump gerði sér upp franskan hreim og gerði grín að frönskum starfsbróður sínum og eiginkonu hans í einkahádegisverði í Washington. 2. apríl 2026 15:18
„Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Donald Trump segir að þau ríki heims sem skorti eldsneyti vegna lokunar Hormússunds og hafi neitað að aðstoða Bandaríkin í stríðinu gegn Íran, standi ein. Forsetinn nefnir Bretland sérstaklega og segir að Bandaríkin verði ekki lengur til staðar fyrir þessi ríki. 31. mars 2026 12:53