Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Agnar Már Másson skrifar 23. apríl 2026 22:38 Trump tilkynnti þetta á Truth Social. Getty/Chip Somodevilla Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í kvöld að vopnahlé milli Líbanon og Ísraels yrði framlengt um þrjár vikur. Hann segir Bandaríkjamenn auk þess hafa „algjöra stjórn“ á Hormússundi.
Trump greindi frá þessu á Truth Social rétt fyrir klukkan 22 að íslenskum tíma. Erindrekar ríkjanna áttu fund í Hvíta húsinu í kvöld. Trump sagði svo á blaðamannafundi í kvöld að til stæði að Joseph Aoun, forseti Líbanon, og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, myndu heimsækja Hvíta húsið á næstu vikum til að ræða varanlegan frið. Þeir hafa enn ekki brugðist við þessum fregnum. Sjá einnig: Líbanon Þetta er framlenging á brothættu vopnahléi sem hafði þegar tekið gildi 17. apríl og átti að standa yfir til 26. apríl. Fram að því höfðu bardagar geisað milli Ísraela og vígamanna Hezbollah-samtakanna sem starfa í Líbanon, og í raun hafa Hezbollah og Ísraelsmenn haldið áfram að skiptast á skotum þrátt fyrir vopnahléð síðustu vikuna. Hezbollah höfðu ekki fulltrúa á fundinum og hafa ekki brugðist við fregnunum. Ísraelar hafa frá því árásirnar á Íran hófust sótt langt inn í Líbanon og helgað sér það landsvæði sem þeir kalla öryggissvæði. Þrátt fyrir vopnahléið sem staðið hefur yfir síðustu vikuna hafa þeir ekki sagst ætla sér ekki að yfirgefa það land og hafa varað fólkið sem þar bjó áður við því að snúa aftur til síns heima. Á blaðamannafundi í kvöld vék Trump einnig að átökum við Íran um Hormússund, sem Bandaríkjamenn hafa lokað. Kvað hann Bandaríkin hafa „algjöra stjórn“ á sundinu og sagði að það myndi ekki opna á ný fyrr en Íranir semji. Trump sagði fyrr í dag að öll írönsk skip sem ættu leið um sundið yrðu skotin niður. Hann bætti í kvöld við að hann vildi ekki að Íranir græddu hundruð milljóna dala á meðan á vopnahléinu stæði.
Ísrael Líbanon Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Tengdar fréttir Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn á að samningar náist milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael á næstu dögum en í gær tilkynnti hann um tíu daga vopnahlé á svæðinu sem gekk í gildi í gærkvöldi. 17. apríl 2026 07:49 Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira
Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn á að samningar náist milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael á næstu dögum en í gær tilkynnti hann um tíu daga vopnahlé á svæðinu sem gekk í gildi í gærkvöldi. 17. apríl 2026 07:49