Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. apríl 2026 01:46 Robert F. Kennedy Jr. var meðal þeirra sem öryggissveitir fylgdu úr salnum. AP/Tom Brenner Donald Trump Bandaríkjaforseti, eiginkona hans Melania Trump, varaforsetinn JD Vance og ráðherrar voru fluttir í öruggt skjól þegar hættu varð vart á galakvöldverði fjölmiðla í Washington. Fregnir hafa borist af því að skothvellir hafi heyrst og að sögn yfirvalda hefur einn verið handtekinn.
Svo virðist sem til standi að setjast aftur að borðum en forsetahjónin voru flutt aftur í Hvíta húsið. Trump hyggst halda blaðamannafund innan skamms. Ef marka má erlenda miðla var kvöldverðurinn rétt að hefjast þegar háir hvellir heyrðust. Liðsmenn lífvarðarsveitar Trump (e. Secret Service) þustu samstundis í gegnum salinn að forsetanum og eiginkonu hans og fylgdu þeim á brott. Aðrir gestir földu sig undir borðum og öskur og brothljóð heyrðust í salnum. Forsetinn birti þessa færslu á Truth Social um klukkan 1:30 að íslenskum tíma. Samkvæmt New York Times var ekki öryggiseftirlit við inngang Hilton hótelsins þar sem viðburðurinn stendur yfir en gestir voru látnir gangast undir leit þegar þeir fóru inn í kvöldverðarsalinn. Shawn McCreesh, blaðamaður New York Times, lýsir því að hafa verið á leið á salernið þegar skothvellir heyrðust í öðrum sal. Hann segir vopnaða öryggisverði hafa komið á móti honum og öskrað á hann að forða sér. Á bakvið verðina hafi fólk verið búið að hnipra sig upp við veggi, aðallega ljósmyndarar og veitingastarfsmenn. Ráðherrar og fylgdarlið hafi í kjölfarið verið fluttir á brott. Viðstaddir hafa lýst fumlausum viðbrögðum lífvarðasveitar forsetans.AP/Tom Brenner Eins og fyrr segir hefur verið tilkynnt að kvöldverðurinn haldi áfram en greint hefur verið frá því að verulega hafi fækkað í salnum. Það kann þó að breytast þar sem miðlar hafa einnig sagt frá því að gestum hafi ekki verið leyft að yfirgefa hótelið þar sem tryggja þurfti varnarlínu umhverfis bygginguna. Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sætti banatilræði af hálfu John Hinckley Jr. fyrir utan saman hótel árið 1981. Fréttin verður uppfærð.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Sjá meira