Körfubolti

Jokic rekinn út úr húsi og Den­ver á bjarg­brúninni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nikola Jokic var vísað af velli fyrir að ýta Jaden McDaniels.
Nikola Jokic var vísað af velli fyrir að ýta Jaden McDaniels. getty/AAron Ontiveroz

Minnesota Timberwolves vantar aðeins einn sigur í viðbót gegn Denver Nuggets til að komast í undanúrslit Vesturdeildar NBA. Nikola Jokic var rekinn af velli í leik liðanna í nótt.

Undir blálok leiksins, þegar Úlfarnir voru fjórtán stigum yfir, setti Jaden McDaniels niður sniðsskot. Það fór illa í Jokic sem bjóst við að McDaniels myndi láta tímann renna út.

Jokic hljóp í áttina að McDaniels og stjakaði við honum. Í kjölfarið sauð upp úr. Jokic var á endanum sendur í sturtu ásamt Julius Randle, leikmanni Minnesota. Jokic skoraði 24 stig í leiknum í nótt, tók fimmtán fráköst og gaf níu stoðsendingar.

„Leikurinn var búinn og úrslitin ráðist. Árið 2026 gerist svona lagað ekki lengur. Svona lagað gerðist á 9. áratugnum þegar lið héldu áfram að skora. En svona er hann,“ sagði David Adelman, þjálfari Denver, eftir leikinn sem Minnesota vann, 112-96. Úlfarnir eru 3-1 yfir í einvíginu.

Ayo Dosunmu var stigahæstur í liði Minnesota með 43 stig en það er það mesta sem varamaður hefur skorað í úrslitakeppni NBA í fimmtíu ár. Dosunmu hitti úr þrettán af sautján skotum sínum, þar af öllum fimm þriggja stiga skotunum, og nýtti öll tólf vítaskotin sín.

Meistarar Oklahoma City Thunder náðu 3-0 forystu í einvíginu við Phoenix Suns með 109-121 sigri í nótt. Shai Gilgeous-Alexander skoraði 42 stig fyrir OKC og hitti úr fimmtán af átján skotum sínum. Dillon Brooks skoraði 33 stig fyrir Suns.

New York Knicks jafnaði metin í einvíginu gegn Atlanta Hawks í Austurdeildinni í 2-2 með sigri í fjórða leik liðanna, 98-114. OG Anunoby skoraði 22 stig fyrir Knicks og Karl-Anthony Towns var með þrefalda tvennu; tuttugu stig, tíu fráköst og tíu stoðsendingar. CJ McCollum skoraði sautján stig fyrir Haukana.

Þá sigraði Orlando Magic Detroit Pistons, 113-105, og er 2-1 yfir í rimmu liðanna. Paolo Banchero og Desmond Bane skoruðu 25 stig hvor fyrir Orlando en Cade Cunningham var atkvæðamestur hjá Detroit með 27 stig og níu stoðsendingar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×