Afkoman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri eldsneytiskostnaðar
Afkoma Icelandair á fyrsta fjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, meðal annars vegna eignasölu og lægri eldsneytiskostnaður en óttast var, og batamerki er að sjá í rekstri félagsins. Áframhaldandi hátt raungengi og vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana setur hins vegar mark sitt á horfurnar inn í árið og útlit er fyrir lakari afkomu á öðrum fjórðungi en á sama tíma í fyrra þótt einingatekjur muni enn aukast.
Tengdar fréttir
Brýnt að „varna“ því að útflutningsgreinar glími við of miklar kostnaðarhækkanir
Núna er þörf á „meiri varfærni og festu“ við stjórn ríkisfjármála samhliða því að hrint er í framkvæmd „metnaðarfullum“ efnahagsumbótum, að því er segir í sérstöku minnisblaði fjármála- og efnahagsráðherra, eigi að takast að rjúfa þá „stöðnun lífskjara“ sem er sögð hafa varað í nærri áratug. Þá er sagt brýnt að koma í veg fyrir að kostnaðarhækkanir í útflutningsgreinum séu umfram það sem þekkist í nágrannaríkjum, einkum við núverandi efnahagsaðstæður.