Diplómanámið í HÍ: Menntun sem breytir lífi Hópur nemenda í starfstengdu diplómanámi skrifar 29. apríl 2026 15:32 Við erum hópur nemenda á öðru ári í starfstengdu diplómanámi við Háskóla Íslands, námi sem hefur opnað dyr sem áður voru lokaðar. Diplómanámið verður 20 ára á næsta ári og um 150 nemendur hafa útskrifast úr náminu. Fyrir okkur hefur námið verið dýrmætt tækifæri til að þroskast, efla sjálfstraust og verða hluti af háskólasamfélaginu. Námsreynsla og persónulegur þroski Í náminu lærum við til dæmis fötlunarfræði, leikskólakennarafræði, tómstundafræði og um mannréttindi. Við höfum prófað nýja hluti eins og að taka próf, halda kynningar og vinna með öðrum háskólanemum. Þótt það hafi stundum verið krefjandi hefur reynslan kennt okkur að treysta á okkur sjálf og standa með eigin skoðunum. Starfsnám og tenging við atvinnulíf Starfsnámið er stór og mikilvægur hluti diplómanámsins. Við höfum fengið tækifæri til að kynnast störfum í leikskólum, grunnskólum, félagsmiðstöðvum, fjölmiðlum og víðar. Í gegnum starfsnámið kynnumst við atvinnulífinu, lærum inn á styrkleika okkar og könnum hvaða leiðir henta okkur best í framtíðinni. Þessi reynsla tengir námið beint við samfélagið og eykur líkur okkar á atvinnu í framtíðinni. Auk þess eflir það sjálfstæði okkar og trú á eigin möguleikum. Menntun sem samfélagsþátttaka Við höfum lært að menntun snýst ekki bara um bóklegt nám. Hún snýst einnig um samfélag, tengsl, vináttu og þátttöku. Innan háskólans höfum við eignast vini, tekið þátt í félagslífi, farið í vísindaferðir og upplifað að við tilheyrum stærri heild. Að tilheyra háskólasamfélagi hefur styrkt sjálfsmynd okkar, aukið vellíðan og dregið fram mikilvægi þess að menntun sé inngildandi og aðgengileg. Takmarkað aðgengi að háskólanámi Diplómanámið við Háskóla Íslands var fyrsta háskólanámið á Íslandi sem sérstaklega er ætlað fólki með þroskahömlun. Aðeins er tekinn inn nýr nemendahópur annað hvert ár, sem þýðir að margir þurfa að bíða lengi eftir tækifæri til náms. Þegar fáir möguleikar standa til boða getur það haft neikvæð áhrif á líðan fólks og framtíðarmöguleika. Háskólinn á Akureyri byrjaði með sambærilegt nám síðasta haust sem er jákvætt skref, en framboð námsleiða í Háskólum er enn mjög takmarkað fyrir okkur. Mannréttindi og þörf á breytingum Við viljum sjá breytingar og að fleiri fái tækifæri til háskólanáms. Fleiri háskólar þurfa að bjóða upp á sambærileg tækifæri til náms og að námið okkar verði bæði lengra og fjölbreyttara. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á að tryggja fötluðu fólki rétt til menntunar án mismununar. Íslensk stjórnvöld eiga að standa við það sem stendur í samningnum. Menntun sem mannréttindi Diplómanámið hefur breytt lífi okkar. Við höfum lært að treysta á okkur sjálf, nýta rödd okkar í réttindabaráttu og horfa til framtíðar með nýrri sýn. Menntun er mannréttindi – og hún á að vera fyrir okkur öll! Við munum ræða inngildandi háskólanám á opnum fundi í Háskólanum á Akureyri miðvikudaginn 6. maí klukkan 10:00-12:00. Öll velkomin. Höfundar eru nemendur í starfstengdu diplómanámi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands: Anna Rósa Þrastardóttir, Emilía Mist Reynisdóttir, Hulda Nína Brynjarsdóttir, Jón Hrafnkell Margrétarson, Luiza Katarzina Kierzk, Nói Gunnarsson, Úlfhildur G. Einarsdóttir og Victoría Lind Karenardóttir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Háskólar Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar