Mega hjóla gegn einstefnu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. apríl 2026 15:51 Þetta skilti blasir við á Ásvallagötu við kjörbúðina Kjötborg. Einstefna í vesturátt en hjólandi mega hjóla á móti umferð. Reykjavíkurborg Heimilt verður að hjóla gegn einstefnu á afmörkuðu svæði í gamla Vesturbænum. Breytingin er liður í því að bæta tengingar í hjólaneti borgarinnar og auðvelda íbúum og öðrum vegfarendum að komast leiðar sinnar á öruggan og skilvirkan hátt. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti tillögu þessa efnis á fundi sínum í morgun.
Breytingin nær til gatna á svæðinu sem afmarkast af Hringbraut, Ánanaustum, Mýrargötu, Garðastræti, Túngötu og Hofsvallagötu. Á eftirfarandi götum verður hjólandi vegfarendum heimilt að fara gegn akstursstefnu: Ásvallagötu, Bárugötu, Hávallagötu, Holtsgötu, Hrannarstíg, Norðurstíg, Nýlendugötu, Ránargötu, Seljaveg, Sólvallagötu, Túngötu, Vesturgötu, Vesturvallagötu og Öldugötu. Öryggi í fyrirrúmi Breytingarnar verða merktar með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum þar sem það á við. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að götur í þéttum hverfum gegni mikilvægu hlutverki í hjólaneti borgarinnar og að hjólandi vegfarendur hafi hingað til oft þurft að fara á gangstéttum til að komast leiðar sinnar. Reykjavíkurborg fékk verkfræðistofuna Eflu til að gera greiningu á erlendum viðmiðum og aðstæðum sem þurfa að vera til staðar til að heimila hjólreiðar gegn einstefnu. Niðurstöður benda til þess að slíkt fyrirkomulag sé talið öruggt og geti jafnvel aukið sýnileika hjólreiðafólks og dregið úr slysum við réttar aðstæður. „Einna mestu máli skiptir að einstefnugöturnar hafi lágan hámarkshraða, 30 km/klst eða lægri og litla bílaumferð. Umferðarmagn bíla á einstefnugötum í Reykjavík er vel innan við evrópsku viðmiðin, sem eru um 4.000 ökutæki á dag, en á reykvísku götunum fer magnið almennt ekki yfir 3.000 bíla á sólarhring,“ segir í tilkynningu borgarinnar. Reynsla frá Reykjavík og erlendis Frá árinu 2023 hefur verið heimilt að hjóla gegn einstefnu á þremur götum í Reykjavík; Bjarkargötu, Tjarnargötu og hluta Ásvallagötu. „Sú reynsla hefur almennt verið jákvæð og engin merki eru um aukna slysatíðni vegna breytingarinnar. Svipaðar aðgerðir hafa reynst vel í mörgum Evrópulöndum, þar á meðal í Belgíu, Hollandi og Danmörku og stytta bæði leiðir hjólandi og auka heildaröryggi í umferðinni. Rannsóknir frá meðal annars Brussel og Vínarborg benda til þess að slysatíðni haldist óbreytt eða jafnvel lækki þegar hjólreiðar eru heimilaðar í báðar áttir á rólegum íbúðargötum.“ Innleiðing í skrefum Í tilkynningu borgarinnar segir að gera megi ráð fyrir að samþykktin sé fyrsta skrefið í innleiðingu þess að heimila að hjólað sé gegn einstefnu víðar í borginni. Breytingin tekur gildi við uppsetningu viðeigandi umferðamerkinga. Fylgst verði náið með áhrifum þeirra á umferðaröryggi og notkun gatna og brugðist við ef tilefni er til. Sérstök áhersla verði lögð á skýrar merkingar og góða yfirsýn vegfarenda. Tillagan hefur hlotið samþykki lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, líkt og kveðið er á um í umferðarlögum.
Reykjavík Hjólreiðar Borgarstjórn Samgöngur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira