Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Birgir Olgeirsson skrifar 29. apríl 2026 21:45 Að sögn Davíðs Torfa Ólafssonar, forstjóra Íslandshótela, er stefnt að umfangsmikilli endurnýjun á hótelunum tveimur á næstu árum. Lýður Íslandshótel taka 1. september 2026 við rekstri tveggja af þekktari hótelum Reykjavíkur, þeirra sem hingað til hafa verið rekin undir nöfnunum Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samningur félagsins við fasteignafélagið Reiti, sem á húsin, gildir í rúm sautján ár og nær því hið minnsta fram til ársins 2043.
Með því lýkur jafnframt rekstri Berjaya Hotels Iceland á hótelunum tveimur. Malasíska félagið keypti reksturinn af Icelandair Group árið 2019 en stígur nú til hliðar þegar nýr leigutaki tekur við. Á hótelunum tveimur eru samtals 471 herbergi og með yfirtökunni stækka Íslandshótel rekstur sinn verulega í Reykjavík. Fyrirtækið rekur fjölda hótela víða um land en viðbótin styrkir stöðu þess enn frekar á höfuðborgarsvæðinu. Íslandshótel taka 1. september 2026 við rekstri hótelsins við Suðurlandsbraut, sem hefur verið rekið undir merkjum Hilton Reykjavík Nordica, og hyggjast ásamt Reitum ráðast í umfangsmiklar endurbætur á næstu árum.Vilhelm Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, segir yfirtökuna hafa mikið vægi fyrir félagið. „Við erum auðvitað í dag að starfrækja um 2.000 herbergi og nú bætast við 471 herbergi. Og það bara skiptir okkur miklu máli og svona eykur okkar styrk.“ Allt starfsfólk verður ráðið aftur Eitt stærsta atriðið við eigendaskiptin er staða starfsfólksins. Um 300 manns starfa á hótelunum tveimur í dag og samkvæmt Íslandshótelum verður allt það fólk ráðið til starfa á ný þegar félagið tekur við rekstrinum í september á næsta ári. Reykjavík Natura við Nauthólsveg er annað þeirra hótela sem skipta um rekstraraðila í haust þegar Íslandshótel taka við af Berjaya Hotels Iceland.Vilhelm „Við munum ráða allt fólk til okkar þannig að það er bara svo að ef við tökum af allan vafa þá mun starfsfólkið, við munum ráða það til okkar," segir Davíð Torfi. Það er stór þáttur í yfirtökunni enda hafa bæði hótelin gegnt mikilvægu hlutverki í ráðstefnu-, gisti- og veitingarekstri í Reykjavík um langt árabil og byggt upp reynslumikið starfsfólk á fjölmörgum sviðum. Hilton verði áfram á Suðurlandsbraut Enn er ekki frágengið undir hvaða nöfnum hótelin tvö verða rekin þegar Íslandshótel taka við. Þó er gert ráð fyrir að húsið við Suðurlandsbraut verði áfram rekið undir merkjum Hilton-keðjunnar. Óvissa er hins vegar enn um endanlega nafngift á hótelinu við Nauthólsveg. Samkvæmt Davíð er félagið nú að vinna í þeirri útfærslu samhliða undirbúningi fyrir yfirtökuna. Rekstrargrunnurinn verði þó að mestu sá sami, það er hótelgisting, veitingarekstur, barir og önnur þjónusta sem fyrir er á stöðunum. Horfa lengra en til yfirtökudagsins Að sögn Davíðs sýnir samningstíminn að félagið horfi bjartsýnum augum til íslenskrar ferðaþjónustu þrátt fyrir sveiflur sem iðnaðurinn hefur gengið í gegnum undanfarin ár. „Við erum búin að vera í þessum bransa í meira en 30 ár og við höfum alltaf haft góða trú á íslenskri ferðaþjónustu og munum gera það áfram.“ Þriggja milljarða endurbætur á næstu þremur árum Samhliða yfirtökunni ætla Íslandshótel og Reitir að ráðast í stórar endurbætur á báðum hótelum. Áætlað er að verja um þremur milljörðum króna í verkefnið á næstu þremur árum. Um verður að ræða víðtæka endurnýjun, ekki aðeins á herbergjum heldur einnig á sameiginlegum rýmum, móttöku, börum, veitingasvæðum og annarri aðstöðu. Markmiðið er að lyfta hótelunum tveimur verulega og styrkja samkeppnisstöðu þeirra til lengri tíma. Davíð segir framkvæmdirnar löngu tímabærar. „Við munum endurnýja þarna öll herbergi og öll bara rými, veitingarými, hótelrými önnur, móttaka, bar og annað slíkt. Þannig að þetta verður allt endurnýjað.“ Þegar hann er spurður hvort þar verði um að ræða einhver flottustu hótel landsins eftir breytingarnar svarar hann: „Verða það, alveg klárt.“
Ferðaþjónusta Hótel á Íslandi Íslandshótel Reykjavík Mest lesið Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Viðskipti innlent Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Sjá meira