Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Samúel Karl Ólason skrifar 30. apríl 2026 09:07 Þeir ferðamenn sem stinga sér í Silfru virðast gífurlega ánægðir með upplifunina og hefur hún verið valin sú besta af því besta af notendum og starfsmönnum Tripadvisor. DIVE Snorklferð DIVE í Silfru hefur verið valin besta upplifun ferðamanna í heiminum af notendum og starfsmönnum Tripadvisor, fyrir árið 2026. Ferðin í Silfru er í efsta sæti yfir það besta sem hægt er að gera í heiminum í árlegum verðlaunum fyrirtækisins en verðlaunin byggja á umsögnum ferðamanna.
Silfra bar sigur úr býtum í flokknum: „Það besta af því besta“ á heimsvísu og í undirflokknum: „Einu sinni á líftíðinni“. Um þann undirflokk segir að umræddar upplifanir séu ólíkar öllu öðru og um sé að ræða þær allra bestu upplifanir sem notendur Trip Advisor veita einkunnir. Í tilkynningu frá Icelandia, móðurfélagi DIVE, segir að þetta sé æðsti heiður sem Tripadvisor veitir. Silfra fékk á undanförnum tólf mánuðum rúmlega fimm þúsund umfjallanir á vefnum og er með fullt hús stiga. Í umsögnum er oft minnst á tærleika vatnsins, þá einstöku tilfinningu að fljóta á milli heimsálfa og þá persónulegu þjónustu sem fólk upplifði alla ferðina. Í öðru sæti er kanóferð í Wales og í því þriðja er fjögurra daga ferð til Machu Picchu í Perú. „Þessi viðurkenning er okkur ótrúlega mikilvæg því hún kemur beint frá gestum okkar,“ sagði Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia, í áðurnefndri tilkynningu. „Teymið okkar leggur metnað sinn í að veita örugga, persónulega og ógleymanlega upplifun í einu magnaðasta náttúruundri jarðar. Að ferðin skuli vera valin sú besta í heimi er heiður sem við deilum með hverjum einasta leiðsögumanni og þeim fjölmörgu gestum sem hafa treyst okkur fyrir því að gera Íslandsferðina sína ógleymanlega.“
Ferðaþjónusta Þingvellir Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira