Viðskipti innlent

At­vinnu­leysi minnkar milli mánaða

Samúel Karl Ólason skrifar
Á milli febrúar og mars lækkaði árstíðarleiðrétt atvinnuleysi um 0,7 prósentustig.
Á milli febrúar og mars lækkaði árstíðarleiðrétt atvinnuleysi um 0,7 prósentustig. Vísir/Vilhelm

Atvinnuleysi minnkaði lítillega milli febrúar og mars en er hærra en það var á sama tíma í fyrra. Í mars voru 14.700 atvinnulausir, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum Hagstofunnar. Hlutfall atvinnulausra var því 6,3 prósent, hlutfall starfandi var 75,4 prósent og atvinnuþátttaka 80,5 prósent.

Á milli febrúar og mars minnkaði árstíðarleiðrétt atvinnuleysi um 0,7 prósentustig. Hlutfall starfandi minnkaði um 0,3 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um eitt prósentustig.

Sé litið til mælinga án árstíðaleiðréttingar og samanburðar milli ára mældist atvinnuleysi meðal sextán til 74 ára gamalla 6,4 prósent í mars. Það markar aukningu um 2,7 prósentustig á milli ára.

Hlutfall starfandi minnkaði um 2,4 prósentustig milli ára og atvinnuþátttaka stóð svo gott sem í stað.

Línurit af vef Hagstofunnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×