Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Samúel Karl Ólason skrifar 4. maí 2026 10:46 Fjölmörg Bandarísk herskip eru á svæðinu kringum Íran um þessar mundir. Bandaríkjamenn hafa sett Íran í herkví og stöðva öll skip sem siglt er þaðan. Sjóher Bandaríkjanna Íranir segja tveimur eldflaugum hafa verið skotið að bandarísku herskipi á eða nærri Hormússundi í morgun. Íranskur miðill, tengdur byltingarverði Íran, segir eldflaugarnar hafa hæft skipið en því neita Bandaríkjamenn. Tveimur bandarískum flutningaskipum mun hafa verið siglt gegnum sundið í dag.
Fars-fréttaveitan í Íran, sem hefur tengingar við íranska byltingarvörðinn, sagði frá því í morgun að stjórnendur bandarískrar freigátu hefðu ekki orðið við skipunum byltingarvarðarins og því hafi tveimur eldflaugum verið skotið að herskipinu nærri borginni Jask, sem er vestur af Hormússundi. Þessar eldflaugar eru sagðar hafa hæft skipið og á því að hafa verið snúið við aftur. Í frétt Fars segir að leiðtogar byltingarvarðarins hafi ítrekað lýst því yfir að engu skipi verði siglt gegnum sundið, án leyfis þeirra. Blaðamaður Axios hefur eftir háttsettum bandarískum embættismanni að ekkert herskip hafi orðið fyrir írönskum eldflaugum. Svarið snýr þó ekki að því hvort eldflaugum hafi verið skotið að bandarísku herskipi á svæðinu. Senior U.S. official denies a U.S. ship was hit by Iranian missiles— Barak Ravid (@BarakRavid) May 4, 2026 Yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum hefur gefið út tilkynningu um að ekkert skip hafi orðið fyrir eldflaugum frá Íran. Þeir segja herskip á svæðinu notuð til að halda Íran í hverkví og til að aðstoða við opnun Hormússunds. Þeir segja ekki til um hvort eldflaugum hafi verið skotið að herskipi eða ekki. 🚫 CLAIM: Iranian state media claims that Iran's Islamic Revolutionary Guard Corps hit a U.S. warship with two missiles. ✅ TRUTH: No U.S. Navy ships have been struck. U.S. forces are supporting Project Freedom and enforcing the naval blockade on Iranian ports. pic.twitter.com/VFxovxLU6G— U.S. Central Command (@CENTCOM) May 4, 2026 Reuters hefur eftir írönskum embættismanni að „viðvörunarskotum“ hafi verið skotið að bandarísku herskipi. Það hafi verið gert til að koma í veg fyrir að því yrði siglt inn á Hormússund. Vilja opna sundið Vopnahlé er í gildi milli Bandaríkjamanna og Írana en Hormússundi hefur verið lokað fyrir siglingar nærri allra skipa frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran fyrir rúmum tveimur mánuðum síðan. Um fimmtungur allrar olíu heimsins fer þar um, við hefðbundnar kringumstæður, og hefur lokunin haft mikil áhrif á hagkerfi víða um heim. Áhafnir fjölmargra skipa bíða þess að geta komist gegnum Hormússund.AP/Fatima Shbair Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í nótt að til stæði að „leiðbeina“ skipum sem setið hafa föst um Hormússund þar í gegn. Hvernig það á að gerast sagði hann þó ekki. Í kjölfarið vöruðu ráðamenn í Íran við því að þeir myndu túlka öll afskipti Bandaríkjamanna á sundinu sem brot gegn vopnahléinu sem nú er í gildi. CENTCOM segir að tveimur bandarískum flutningaskipum hafi verið siglt gegnum sundið í morgun. Það hafi verið gert eftir að bandarískum herskipum hafi verið siglt gegnum sundið. Eitt skip, frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum, varð fyrir að minnsta kosti tveimur drónum í morgun. U.S. Navy guided-missile destroyers are currently operating in the Arabian Gulf after transiting the Strait of Hormuz in support of Project Freedom. American forces are actively assisting efforts to restore transit for commercial shipping. As a first step, 2 U.S.-flagged merchant… pic.twitter.com/SVDxDhK72I— U.S. Central Command (@CENTCOM) May 4, 2026 Fréttin hefur verið uppfærð. Síðast klukkan 12:20.
Íran Bandaríkin Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Skipaflutningar Bensín og olía Tengdar fréttir Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Donald Trump Bandaríkjaforseti tikynnti á samfélagsmiðlinum Truth Social í nótt að Bandaríkjamenn myndu „leiðbeina“ skipum sem setið hafa föst um Hormuz-sund. Segir hann um að ræða aðgerðir í þágu mannúðar og bendir réttilega á að áhafnir skipanna séu að verða uppiskroppa með mat og aðrar nauðsynjar. 4. maí 2026 06:39 Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði. 3. maí 2026 08:27 Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hingað til hafnað miðlunartillögu Írans en í henni fólst að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund og að herkví bandaríska hersins yrði aflétt. 2. maí 2026 19:30 Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Donald Trump segist ekki þurfa leyfi frá Bandaríkjaþingi fyrir stríðsrekstrinum í Íran þar sem honum sé í raun lokið. Hann er ekki ánægður með stöðu mála í samningaviðræðum og segir að Bandaríkjamenn muni ekki fara of snemma frá Íran. 2. maí 2026 13:25 Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Sjá meira
Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Donald Trump Bandaríkjaforseti tikynnti á samfélagsmiðlinum Truth Social í nótt að Bandaríkjamenn myndu „leiðbeina“ skipum sem setið hafa föst um Hormuz-sund. Segir hann um að ræða aðgerðir í þágu mannúðar og bendir réttilega á að áhafnir skipanna séu að verða uppiskroppa með mat og aðrar nauðsynjar. 4. maí 2026 06:39
Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði. 3. maí 2026 08:27
Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hingað til hafnað miðlunartillögu Írans en í henni fólst að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund og að herkví bandaríska hersins yrði aflétt. 2. maí 2026 19:30
Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Donald Trump segist ekki þurfa leyfi frá Bandaríkjaþingi fyrir stríðsrekstrinum í Íran þar sem honum sé í raun lokið. Hann er ekki ánægður með stöðu mála í samningaviðræðum og segir að Bandaríkjamenn muni ekki fara of snemma frá Íran. 2. maí 2026 13:25
Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17