Krefjumst þjóðaratkvæðagreiðslu um vindorkuver á Íslandi Anna Sofía Kristjánsdóttir skrifar 10. maí 2026 13:32 Það ætti ekki að vera í hendi ráðherra eða Landsvirkjunar að samþykkja iðnað í ósnortinni náttúru undir vindorkuver. Við Íslendingar viljum fá að kjósa um svo mikilvægt málefni sem hefur gríðarleg áhrif á ásýnd landsins, heilbrigði náttúru, grunnvatns, heilbrigði fugla og grasbíta og ekki síst manna. Við erum þegar að fá milljarða í ríkiskassann vegna ferðaþjónustunnar. Ætlar ráðherra að fórna því? Suðurlandið er eitt vinsælasti ferðamannasvæðið hér á landi. Ferðamenn tala um ósnortna víðáttu sem er einstakt fyrir fallega landið okkar. Það er því með ólíkindum að stjórnvöld gefi grænt ljós á vindorkuver Landsvirkjunar. Okkur íbúum landsins er bent á að þetta er bara byrjunin, hér bíða erlendir fjárfestar í röðum til að fá að koma upp vindorkuverum. Landsvirkjun auglýsir Ísland „Orkueyjan“ sem eru skýr skilaboð út fyrir landsteinana. Fréttaflutningur RÚV er einhæfur og miðla ógagnrýndum upplýsingaum frá Landsvirkjun. Ekki orð um mótmæli, ekki rætt við bændur eða landeigendur á svæðinu. Fréttamenn RÚV og Sýnar eru yfir höfuð slappir að vinna vinnuna sína, fara á staðinn, taka viðtöl og skoða aðstæður. Einnig vantar allan gagnrýnan fréttaflutning um vindorkuver, kosti sem eru fáir og galla sem eru yfirgnæfandi. Þakka ber Heimildinni, áður Stundinni um þeirra rannsóknarvinnu og greinar um vindorkuver. Einnig Vísi og Bændablaðinu fyrir birtingar á innsendum greinum um málið. Ástæðan fyrir því að mörg lönd fara í orkuskipti með því að setja upp vindorkuver, er nauðlausn þar sem ekki er jarðvarmi eða vatnsafl til staðar. Andstaðan við vindorkuverin hefur stigmagnast bæði á meginlandinu og vestanhafs. Kostnaður við vindorkuver er gífurlegur og stór hluti hans er borgaður með skattpeningum íbúanna. Vindorkufurstarnir fá styrki og lán frá ríki og ESB í nafni „Grænnar“ orku. Náttúruspjöllin eru svo alltaf að koma betur í ljós. Ljósmengun: Hefur áhrif á upplifun fólks á náttúrunni, sérstaklega á kvöldin þegar Norðurljósin skína. Sjónmengun: Hefur áhrif á upplifun fólks á náttúrunni. Óbyggðri náttúru hefur verið breytt í iðnaðarsvæði. Látíðni og önnur hljóðmengun: Látíðni veldur truflun á flugi og pörun fugla, veldur höfuðverkjum (mygrene), svefntruflunum og heilsubresti hjá mönnum. Mjólkurkýr missa nit, hestar stressast og kindur forðast svæði nálægt vindorku. Plastmengun: Plastmengun er mikill skaðvaldur í nátttúrunni. Plastið fer í jarðveg, vatnsból, grunnvatn, fiskinn, grasbítana og að lokum í okkur. Fulgar bera með sér örplast yfir allt landið. Eiturefnamengun: Það er þekkt að spaðar og bolur eru þakin þykku lagi af epoxi, polyester og vinyl sem inniheldur m.a. flúor og Bisfenól A. Flísar af glefíber brotna af með tímanum og dreifast um stórt svæði. Förgun: Það er enn engin góð lausn við endurvinnslu spaðanna og mjög óhagkvæmt að endurvinna bolina. Kolefnisspor: Kolefnisspor vindorkuvera er reiknað frá „vöggu til grafar“. Framleiðslan er unnin mest með kolum og olíu, flutningurinn fer fram mestmegnis með olíu, vinna við uppsetningu (grafa og sprengja fyrir djúpum undirstöðum auk nokkur hundruð tonn af stáli og steypu) og vegagerð fer fram með tilheyrandi kolefnisspori. Förgun spaða er í dag á landfyllingum sem taka yfir stór landsvæði og eyðileggja þar með land sem hægt væri að nýta í annað. Ef flytja á spaða og boli úr landi þarf að reikna það kolefisspor með. Vindorkuverið nær því alldrei að jafna út kolefnissporið þegar reiknað er með 30% framleiðslu á orku og líftímanum í um 20 ár. Kostnaður: Vindorka er dýr. Ég legg til að ríkisstjórnin bjóði Christian Steinbeck, sænskum sérfræðingi í kostnaði við vindorkuver, að halda kynningu á Alþingi svo hún fái óháðar upplýsingar beint í æð. Vaðölduvirkjun er að verða að veruleika með 28 vindtúrbínum með blikkandi rauðum ljósum, sjónmengun, hljóðmengun og eiturefnamengun rétt hjá aðal ferðamannastöðum á Suðurlandi. Undirrituð var á staðnum þegar fyrsta flutningalestin fór af stað og var viðstödd táknrænan gjörning. Til að almenningur gerir sér grein fyrir umfangi og sýnileika þessara vindtúrbína, þá er hægt að ímynda sér landslagið við Búrfell þegar ferðamenn standa við Kerið og virða fyrir sér víðáttuna. Það eru um 70 km frá Kerinu að Búrfellsvirkjun eða svipað og frá Reykjavík að Kerinu. Okkar opna landslag gerir okkur kleift sjá marga tugi kílómetra. Mynd 1 fjarlægð milli Kersins og Búrfells. Google Maps. Guli hringurinn táknar vindorkuverið á myndinni. Ferðamenn og íbúar munu verða fyrir miklum neikvæðum áhrifum. Stjórnvöld ættu að kynna sér ritgerð Önnu Dóru Sæþórsdóttur og Rannveigar Ólafsdóttur Energy for Sustainable Development dags. 2020, þar sem fjallað er um áhrif vindorkuvera á ferðaþjónustuna. Það væri miklu skynsamari lausn, ef þarf að auka orkuframleiðslu, að bæta það sem fyrir er og skoða mögulega nýtt lón í sátt við umhverfið. Aðal vandamál okkar er dreifikerfið sem á mörgum stöðum lekur allt að 80% orkunni áður en hún kemst á áfangastað. Við krefjumst að stofnað verði umhverfisráðuneyti óháð orkumálaráðuneytinu. Þessi mál mega ekki vera á eins manns hendi! Mynd 3 Undirbúningur mótmæla 7.5.2026, við Þorlákshöfn. Sjá nánar eftirtaldar greinar: Energi og Natur - Energipolitikk på naturens premisser - Trøndelag Áhyggjur af sjónmengun vegna tuga vindmylla sem til stendur að reisa skammt frá Þórshöfn - DV Facebook Bing Videos Vindkraftens gigantiska förluster - Christian Steinbecks föredrag i Riksdagen Bing Videos Vindkraften største kapitalødeleggelse i svensk historie? | steigan.no Professor Ken Mattsson - Infralyd og støy fra vindkraft. Vitenskap, fakta og løgner Unheard noise, real concerns: Wind turbines under scrutiny - Brussels Signal Vindorkuver eiga ekki heima á Íslandi. Höfundur er meðlimur í Landvernd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun