„Gjörsamlega óásættanlegt“ Agnar Már Másson skrifar 10. maí 2026 21:29 Lítið er vitað um svör Írana annað en það að Donald Trump lítist ekki á þau. AÐ/Matt Rourke Svör bárust frá írönskum stjórnvöldum í dag við friðartillögum Bandaríkjamanna. Lítið er vitað um innihald þeirra en Donald Trump Bandaríkjaforseti segir þau vera óboðleg. „
Gjörsamlega óásættanlegt,“ skrifar Trump á samfélagsmiðla um svör Írana við nýjustu vopnahléstillögu Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn sendu Írönum tillögu sína á föstudag. Svör Írana bárust í gegnum pakistanska milligöngumenn í dag, að því er íranski miðillinn Tasmin greinir frá en miðillinn er að hluta ríkisrekinn. Ekki liggur fyrir hvað kemur fram í svari Írana og Trump fer ekki í frekari smáatriði um innihald þess að öðru leyti en að honum líki ekki við það. Vopnahlé hefur verið í gildi í Íran síðasta mánuðinn en á meðan á því hefur staðið hefur illa gengið að tryggja stærra samkomulag um að binda enda á átökin. Á sama tíma hafa Íranir og Persaflóaríki skipst á árásum sín á milli síðustu vikuna og því er vopnahléð á viðkvæmum stað. New York Times hefur eftir ónafngreindum írönskum ráðamönnum að viðræður landanna tveggja gangi út á að tryggja 30 daga vopnahlé og að Íranir myndu stöðva herkví sína um Hormússund, sem er ein mikilvægasta flutningaleið heimsins fyrir olíu. Á meðan á því vopnahléi stæði myndu Bandaríkjamenn og Íranir vinna að stærra samkomulagi um frið. Fyrr í vikunni hélt Trump því fram að stríðinu myndi ljúka von bráðar. En í dag gaf CBS út myndbrot úr „60 minutes“-viðtali við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þar sem hann sagði að átökunum í Íran væri „ekki lokið“, enda ættu Íranir enn eftir að gefast upp á því að geta auðgað úran til að framleiða kjarnorkuvopn.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira