Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Valur Páll Eiríksson skrifar 11. maí 2026 08:01 Edwards fór fyrir Úlfunum og tileinkaði móður sinni sigurinn. Carlos Gonzalez/The Minnesota Star Tribune via Getty Images Anthony Edwards var hetjan en Victor Wembanyama skúrkurinn í 114-109 sigri Minnesota Timberwolves í undanúrslitum Vesturdeildar NBA í Minneapolis í nótt. „
Í dag er mæðradagur og ég vildi bara vinna fyrir mömmu, það er svo einfalt,“ sagði Edwards í óspurðum fréttum á blaðamannafundi eftir leik næturinnar. Móðir hans, Yvette Edwards, lést úr krabbameini árið 2015 en Shirley Edwards, móðir hennar og amma Anthony, lést úr krabbameini átta mánuðum síðar. Edwards kveðst klæðast treyju númer 5 til að heiðra minningu mæðgnanna sem báðar féllu frá á fimmta degi mánaðar. 16 IN THE FOURTH. 36 FOR THE GAME.ANT WAS ON 🔥 IN GAME 4.Tied 2-2... series shifts back to San Antonio!Game 5: Tuesday, 8:00pm/et, NBC/Peacock pic.twitter.com/pvFrZs5e6n— NBA (@NBA) May 11, 2026 „Ég gat ekki tapað þessum leik á þessum degi,“ sagði Edwards enn fremur eftir leikinn. Edwards skoraði 36 stig, flest á vellinum, í 114-109 sigri hans manna í Timberwolves á Spurs í Minneapolis í nótt. Úrslitin þýða að staðan í einvíginu er jöfn, 2-2. Þá munaði um Frakkann Victor Wembanyama í liði Spurs í nót þar sem honum var hent út úr húsi snemma í öðrum leikhlutanum. Í baráttu um frákast negldi hann olnboganum í andlit Naz Reed, miðherja Úlfanna. Status alert: Victor Wembanyama has been ejected Sunday after being assessed a Flagrant 2 foul. pic.twitter.com/G02YylonQE— Underdog NBA (@UnderdogNBA) May 11, 2026 Um var að ræða fyrsta skipti á ferli unga Frakkans sem hann er útilokaður frá leik. Það stefnir í spennandi seríu en í öðrum leik næturinnar var spennan minni. New York Knicks unnu 30 stiga sigur á Philadelphia 76ers til að sópa einvígi liðanna 4-0. Knicks er því komið í úrslit Austurdeildarinnar þar sem annað hvort Detroit Pistons eða Cleveland Cavaliers verða andstæðingurinn. Detroit leiðir 2-1 þar. Allt bendir til að sigurliðið úr einvígi Minnesota og San Antonio mætir Oklahoma City Thunder í úrslitum Vesturdeildarinnar. OKC leiðir einvígi við Los Angeles Lakers 3-0 fyrir leik fjögur í nótt.
NBA Mest lesið Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Golf Svona líta 32-liða úrslitin á HM út Fótbolti Mikið fjör en engin mörk hjá Kólumbíu og Portúgal og Kongó skaust áfram Fótbolti Varamaðurinn kramdi hjörtu Írana og Messi skoraði sjötta markið sitt á HM Fótbolti Bielsa með böggum hildar: „Skildi ekkert eftir mig fyrir úrúgvæskan fótbolta“ Fótbolti Frá Sauðárkróki til Sarajevo: „Ótrúlega skemmtileg umbreyting og hentar mér vel“ Fótbolti Tveir kantmenn gætu verið úr leik hjá Evrópumeisturunum Fótbolti Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Fótbolti Argentína datt í lukkupottinn: Greið leið í undanúrslitin Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira