Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Birgir Olgeirsson skrifar 11. maí 2026 10:45 Rúmlega 80 þúsund manns hafa horft á myndband af uppátækinu á TikTok þegar þetta er skrifað. Dana Rún Þeir sem halda því fram að unga kynslóðin sitji bara heima hjá sér í símanum geta tekið gleði sína á ný því tveir ungir menn í Reykjavík brugðu á leik nýverið og skelltu sófa á tvær rafskútur og rúntuðu um Laugardal öðrum til mikillar gleði og kátínu. Myndaband af uppátækinu rataði á TikTok en þar sjást þeir aka sófanum af mikilli færni eftir Leirulæk. Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp, segir starfsfólk fyrirtækisins hafa séð myndbandið nánast strax þegar það fór að dreifast á TikTok. „Okkur fannst þetta ekkert eðlilega fyndið. Mig langar helst að bjóða þeim vinnu,“ segir Kristín. Uppátækið minnir óneitanlega á eitt þekktasta atriði úr bresku þáttunum Mr. Bean, sem leikarinn Rowan Atkinson gerði ódauðlegan, þegar persónan ekur litla Mini-bílnum sínum úr hægindastól á þakinu eftir verslunarferð. Atriðið er úr þættinum Do-It-Yourself Mr. Bean frá því herrans ári 1994. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=JYNyQcblzgI">watch on YouTube</a> Að mati Kristínar sýnir myndbandið af mönnunum tveimur í Reykjavík bæði hugmyndaflug og færni. „Ég held að þeir séu komnir í samkeppni við deilibílana okkar. Þetta eru augljóslega menn með mikla hæfileika í skútustjórnun, geggjað hugmyndaflug og bara geggjaðir gaurar.“ @danarun86 Made in Laugardalur, Reykjavík 💋 #ísland #diml #íslenskttiktok @Hopp Reykjavík ♬ I Wish (I wish I was a little bit taller) - Skee-Lo Hún segir þetta þó ekki vera það sem hjólin séu sérstaklega hönnuð fyrir, þótt þau þoli ýmislegt. Hopp rekur deiliþjónustu með rafskútur í Reykjavík og víðar, auk annarra samgöngulausna. Kristín Hrefna Halldórsdóttir er framkvæmdastjóri Hopp, en hún segir starfsmenn fyrirtækisins hafa orðið vitni að ýmsum uppátækjum með Hopphjólin. Hopp „Við höfum séð fólk færa sófa og alls konar skrýtna og flókna hluti. Hjólin eru ekki beint hönnuð til að flytja þunga hluti, en þetta er ekki vandamál fyrir hjólin. Þetta eru sterk hjól og þau geta höndlað ýmislegt.“ Kristín segir starfsfólk Hopp sjálft hafa leikið sér að möguleikum tækninnar. „Ég hef sjálf prófað ýmsa hluti og nokkrir úr forritarahópnum okkar tóku hjól í sundur og bjuggu til rafstýrðan hægindastól með skútuinnviðum. Hann er bara á hinni skrifstofunni. Það eru alls konar leiðir til, en það er gaman að sjá hvað er hægt að gera með þessum hjólum.“ Veistu hvaða ungu menn eru hér á ferðinni? Fréttastofu langar að spjalla við þá. Sendu okkur ábendingu hér. Reykjavík Rafhlaupahjól Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira
Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp, segir starfsfólk fyrirtækisins hafa séð myndbandið nánast strax þegar það fór að dreifast á TikTok. „Okkur fannst þetta ekkert eðlilega fyndið. Mig langar helst að bjóða þeim vinnu,“ segir Kristín. Uppátækið minnir óneitanlega á eitt þekktasta atriði úr bresku þáttunum Mr. Bean, sem leikarinn Rowan Atkinson gerði ódauðlegan, þegar persónan ekur litla Mini-bílnum sínum úr hægindastól á þakinu eftir verslunarferð. Atriðið er úr þættinum Do-It-Yourself Mr. Bean frá því herrans ári 1994. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=JYNyQcblzgI">watch on YouTube</a> Að mati Kristínar sýnir myndbandið af mönnunum tveimur í Reykjavík bæði hugmyndaflug og færni. „Ég held að þeir séu komnir í samkeppni við deilibílana okkar. Þetta eru augljóslega menn með mikla hæfileika í skútustjórnun, geggjað hugmyndaflug og bara geggjaðir gaurar.“ @danarun86 Made in Laugardalur, Reykjavík 💋 #ísland #diml #íslenskttiktok @Hopp Reykjavík ♬ I Wish (I wish I was a little bit taller) - Skee-Lo Hún segir þetta þó ekki vera það sem hjólin séu sérstaklega hönnuð fyrir, þótt þau þoli ýmislegt. Hopp rekur deiliþjónustu með rafskútur í Reykjavík og víðar, auk annarra samgöngulausna. Kristín Hrefna Halldórsdóttir er framkvæmdastjóri Hopp, en hún segir starfsmenn fyrirtækisins hafa orðið vitni að ýmsum uppátækjum með Hopphjólin. Hopp „Við höfum séð fólk færa sófa og alls konar skrýtna og flókna hluti. Hjólin eru ekki beint hönnuð til að flytja þunga hluti, en þetta er ekki vandamál fyrir hjólin. Þetta eru sterk hjól og þau geta höndlað ýmislegt.“ Kristín segir starfsfólk Hopp sjálft hafa leikið sér að möguleikum tækninnar. „Ég hef sjálf prófað ýmsa hluti og nokkrir úr forritarahópnum okkar tóku hjól í sundur og bjuggu til rafstýrðan hægindastól með skútuinnviðum. Hann er bara á hinni skrifstofunni. Það eru alls konar leiðir til, en það er gaman að sjá hvað er hægt að gera með þessum hjólum.“ Veistu hvaða ungu menn eru hér á ferðinni? Fréttastofu langar að spjalla við þá. Sendu okkur ábendingu hér.
Veistu hvaða ungu menn eru hér á ferðinni? Fréttastofu langar að spjalla við þá. Sendu okkur ábendingu hér.
Reykjavík Rafhlaupahjól Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira