Ók gegn rauðu ljósi þegar kona á níræðisaldri lést Árni Sæberg skrifar 11. maí 2026 11:55 Myndin er tekin í akstursátt Kia bifreiðarinnar við sambærileg birtuskilyrði og þegar slysið varð. Gangandi vegfarandi sést á leið yfir gangbrautina. Lampi í götulýsingu við gangbrautina er bilaður en tveir lampar eiga að vera á hverjum ljósastaur á götulýsingunni. RNSA Rautt ljós logaði þegar ökumaður á níræðisaldri ók á konu á níræðisaldri, sem gekk yfir Suðurlandsbraut á gangbraut, með þeim afleiðingum að hún lést á spítala tveimur dögum síðar.
Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna slyssins, sem varð þann 8. desember síðastliðinn. Konan lést á spítala þann 10. desember. Í skýrslunni segir að konan hafi beðið eftir grænu gönguljósi við umferðarljósastýrða gönguleið þvert yfir Suðurlandsbraut til móts við Hilton Nordica hótelið skammt austan Kringlumýrarbrautar. Þegar grænt ljós kviknaði fyrir hana hafi hún gengið af stað áleiðis til suðurs yfir akbraut með umferð til vesturs. Á sama tíma hafi Kia Sportage fólksbíl verið ekið á móti rauðu umferðarljósi, vestur Suðurlandsbraut á vinstri akrein og á konuna. Engin hemlaför hafi verið eftir bifreiðina á akbrautinni. Slysið hafi verið tilkynnt til lögreglu klukkan 09:51 og viðbragðsaðilar farið á vettvang. Með hugann við áfangastaðinn Að sögn ökumannsins, sem var karlmaður á níræðisaldri, hafi hann ekki veitt umferðarljósastýrðri gönguleið athygli og ekki séð gangandi vegfaranda sem var á leið þvert yfir akbrautina. Myrkur hafi verið úti og hann verið með hugann við nálægan áfangastað. Hann hafi sagst ekki átta sig á því á hvaða hraða hann ók bifreiðinni þegar slysið varð og að hann hafi ekki notað hemla bifreiðarinnar fyrr en eftir slysið. Bilaður ljósastaur Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að meginorsök slyssins hafi verið að bifreiðinni var ekið gegn rauðu umferðarljósi við gangbraut. Samkvæmt myndbandi hafi rautt umferðarljós verið fyrir umferð um Suðurlandsbraut til vesturs þegar bifreiðinni var ekið á gangandi vegfarandann á gönguleiðinni. Aðrar orsakir slyssins hafi verið að ökumaðurinn hafi verið með skerta athygli við akstur, bifreiðinni hafi verið ekið of hratt, eða á 3,5 kílómetra hraða á klukkustund yfir hámarkshraða og að lýsingu á slysstað hafi verið ábótavant. Í greiningu skýrslunnar kemur fram að lampi í ljósastaur við gönguleiðina hafi verið bilaður og gönguleiðarlýsingin beint yfir slysstað hafi verið um fjórðungur af því sem Reykjavíkurborg setur sem viðmið á lýsingu við umferðarljósastýrðar gönguleiðir. Þá hafi það einnig verið niðurstaða lýsingaútreikninga að mæla með auknu ljósmagni við þessa gönguleið þannig að hönnun ljósmagns sé í samræmi við stefnu borgarinnar. Samkvæmt svörum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er málið enn til rannsóknar.
Samgönguslys Reykjavík Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira