Guðmundur Ingi svarar fyrir umdeilt myndband Freyja Þórisdóttir skrifar 11. maí 2026 16:23 Guðmundur Ingi Þóroddsson er oddviti Flokks fólksins. Vísir/Vilhelm Gervigreindarmyndband sem birt var á TikTok-aðgangi oddvita Flokks fólksins í Reykjavík, Guðmundar Inga Þóroddssonar, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Þar mátti meðal annars sjá Guðmund veitast að Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar, og Ingu Sæland dansandi káta. Myndbandið hefur nú verið tekið niður og segir Guðmundur að um dómgreindarleysi sé að ræða.
Þetta segir í skriflegu svari til fréttastofu Vísis frá Guðmundi en þar segir hann þau í flokknum ekki hafa gert myndbandið sjálf. Þau hafi fengið myndbandið sent frá stuðningsmanni og það hafi átt að vera létt grín. „Þetta var ekki kosningamyndband og er hvorki frá mér né flokknum komið heldur fengum við þetta sent frá stuðningsmanni og átti að vera létt grín sem það var og þeir sem horfðu á það sáu að þetta var mest söngur og dans,“ segir í svarinu. Myndbandinu var ekki póstað á eiginlegum TikTok-aðgangi Flokks fólksins en hefur það nú verið tekið niður af aðgangi Guðmundar. Hann segir það hafa verið dómgreindarleysi að hleypa myndbandinu í birtingu. „Það var engin alvara þarna á bak við, dómgreindarleysi að hleypa þessu samt í gegn og ekkert meira um þetta að segja,“ segir loks í svari Guðmundar. Ofbeldið ekki nýtt af nálinni Fyrir helgi birtu ungir miðflokksmenn leikið myndband á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem kjósandi flokksins sést kýla pólitískan andstæðing í andlitið fyrir utan kjörstað. Björn Leví, fyrrverandi þingmaður Pírata, spyr hvað sé að gerast í pólitík í dag og segist ekki hrifinn af nýjasta útspili Flokks fólksins. „Hvað í fjandanum er að gerast í þessari pólitík nú orðið? Það er alls staðar verið að (þykjast) berja mann og annan. Og nei, þetta er ekkert betra en myndbandið hjá Miðflokknum í Mosó – ef eitthvað er þá er þetta verra þar sem gervigreindin er notuð til þess að koma öðrum frambjóðanda fyrir í auglýsingunni (örugglega án leyfis viðkomandi). Mín vegna þá er þetta klárt rautt spjald. Út af með manninn,“ skrifar hann í færslu á Facebook. Ummæli undir færslu Björns eru mörg á þann veg að það sé ósmekklegt að oddviti láti sér detta í hug að birta myndbandið.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mosfellsbær Miðflokkurinn Auglýsinga- og markaðsmál Flokkur fólksins TikTok Samfylkingin Samfélagsmiðlar Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira