Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Árni Sæberg skrifar 13. maí 2026 15:47 Þeir Matthías Björn Erlingsson, Lúkas Geir Ingvarsson og Stefán Blackburn eru allir ákærðir fyrir manndráp í málinu. Vísir/Anton Brink Landsréttur kvað upp dóm í Gufunesmálinu svokallaða í síðdegis. Einn sem hlaut dóm í héraði var sýknaður og dómar þriggja sem dæmdir voru fyrir manndráp voru mildaðir um eitt til tvö ár. Ung kona sem var sýknuð í héraði var aftur á móti sakfelld fyrir hlutdeild í frelsisviptingu og dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Þetta segir Elimar Hauksson, verjandi ungu konunnar, í samtali við Vísi. Þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson hlutu sextán ára dóma í Landsrétti en höfðu hlotið sautján ár í Héraðsdómi Suðurlands, fyrir að svipta Hjörleif Hauk Guðmundsson lífi. Matthías Björn Erlingsson hlaut fjórtán ára dóm í héraði en Landsréttur mildaði dóm hans í tólf ára fangelsisvist. Þá sýknaði Landsréttur ungan karlmann sem hafði verið sakfelldur í héraði fyrir peningaþvætti, með því að taka við peningum sem mennirnir þrír höfðu af Hjörleifi. Viðsnúningur að hluta hvað tálbeituna varðar Ung kona sem ákærð var fyrir hlutdeild í ráni og frelsissviptingu, með því að hafa sett sig í samband við Hjörleif og fengið hann til að yfirgefa heimili sitt og fara í bíl vitandi að til stæði að svipta hann frelsi sínu, var sýknuð í héraði en Ríkissaksóknari vildi ekki una þeirri niðurstöðu og áfrýjaði til Landsréttar. Elimar segir að Landsréttur hafi sakfellt hana fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en sýknað af ákæru fyrir hlutdeild í ráni, þar sem ekki hafi verið talið sannað að ásetningur hennar hefði staðið til þess að Hjörleifur Haukur yrði beittur ofbeldi. Þá hafi ákæruvaldið reynt að fá ungu konuna sakfellda fyrir fjárkúgun í stað ráns en Landsréttur hafi ekki tekið þá kröfu til greina þar sem hún hafi ekki verið ákærð fyrir fjárkúgun. Þannig séu það vonbrigði að hún hafi verið dæmd fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en jákvætt sé að hún hafi verið sýknuð af alverlegasta ákæruliðnum.
Manndráp í Gufunesi Dómsmál Reykjavík Ölfus Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira