Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2026 19:25 Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans. Vísir/Lýður Valberg Búast má við stýrivaxtahækkun um 0,25 prósentustig, samkvæmt aðalhagfræðingi Landsbankans. Hún segir forsvarsmenn Seðlabankans hafa gefið skýrt til kynna við síðustu ákvörðun að herða þyrfti taumhaldið. Það þyrfti að gera þó það gæti kælt hagkerfið.
Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mætti í kvöldfréttir Sýnar í kvöld og ræddi stöðuna fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans, sem tilkynnt verður í fyrramálið. Hún sagði niðurstöðuna líklega hækkun. „Þá er það einna helst af því að verðbólguvæntingar hafa aukist mjög og það er hérna áhersluatriði hjá þeim að ná niður verðbólgu og sömuleiðis verðbólguvæntingum,“ sagði Una. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði við fréttastofu í morgun að vaxtahækkun myndi ekki koma honum á óvart. Sjá einnig: „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Hagfræðideild Landsbankans birti í dag greiningu þar sem fram kemur að einkaneysla hafi dregist verulega saman í síðasta mánuði. Samdrátturinn hafi ekki verið meiri síðan á tímum Covid. „Við erum að sjá það að kortavelta er að dragast talsvert saman sem bendir svona til þess að einkaneyslan sé að hægja verulega á sér, í rauninni meira en við vorum upphaflega að gera ráð fyrir,“ sagði Una. Hún sagði þetta mögulega sýna að Íslendingar væru búnir að búa við talsvert háa vexti um nokkurt skeið og það hefði hægt á hagkerfinu. „Við vorum farin að sjá merki þess til dæmis á vinnumarkaði, atvinnuleysi aukist, fjöldi starfandi dregist saman. Við sjáum að það virðist vera minni eftirspurn eftir vinnuafli og þá er í rauninni ekkert skrýtið að það fari að koma fram í kortaveltutölum sem eru farnar að sýna svona mikinn samdrátt og þetta ætti í rauninni að styðja við peningastefnuna, það er að segja, ef að við sjáum þennan minni eftirspurnarþrýsting birtast í minni verðbólguþrýstingi.“ Una sagði líklegt að áhrif lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti muni sjást á maímælingum á vísitölu neysluverðs, sem birt verður í næstu viku. Við það gæti verðbólga farið undir fimm prósent, sem væri mjög jákvætt. „Þannig að þetta er að skila árangri en svo er það bara hitt að heimsmarkaðsverðshækkanir hafa verið mjög miklar á olíuverði og það svona vegur á móti og er svona aðeins að viðhalda þessum verðbólguþrýstingi þrátt fyrir þessa lækkun á virðisaukaskatti.“ Viðtalið við Unu má sjá í spilaranum hér að neðan.
Seðlabankinn Efnahagsmál Verðlag Landsbankinn Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira