„Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Árni Gísli Magnússon skrifar 22. maí 2026 21:10 Jakob Franz fagnar marki með Valsmönnum. Vísir / Anton Brink Valsmenn gerðu góða ferð norður og báru sigur úr býtum gegn KA á Greifavellinum í áttundu umferð Bestu deildar karla.
Albin Skoglund skoraði eina mark leiksins seint í fyrri hálfleik og 1-0 sigur gestanna niðurstaðan. Jakob Franz Pálsson, leikmaður Vals, kom inn á eftir aðeins tíu mínútna leik eftir meiðsli Orra Sigurðar Ómarsson og átti góðan leik í hjarta varnarinnar. Jakob er uppalinn Þórsari og leiddist ekki að vinna nágrannana á Brekkunni í kvöld. „Mjög vel, bara geggjað. Alltaf gaman að koma norður og spila en sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum.“ Hvernig fannst þér leikurinn spilast? „Byrjum ágætlega, hleypum þeim síðan aðeins í leikinn og leyfum þeim að spila boltanum og missum hann klaufalega hérna nokkrum sinnum. Fáum síðan þetta mark og kemur smá kraftur í okkur og höldum boltanum eftir það og fannst við bara sigla þessu eiginlega í seinni hálfleiknum, það var bara svolítið svoleiðis.“ KA hélt meira í boltann, sérstaklega í fyrri hálfleik, á meðan Valsarar sóttu hratt og gekk erfiðlega að halda boltanum innan liðsins í langan tíma. „Þeir gera ágætlega með að halda boltanum og þegar við vinnum hann þá erum við bara að missa boltann hér og þar. Hefðum getað gert betur með boltann en eins og ég segi við siglum þessu bara heim. Það var ekki mikið af færum hérna í seinni sem þeir fá til að jafna og já bara sáttur með sigurinn.“ Umræðan böggar ekkert Umræðan um Valsliðið hefur verið allskonar það sem af er tímabili og oft á tíðum neikvæð. Valur situr í fimmta sæti með 15 stig eftir átta umferðir.Jakob segir umræðuna lítið fá á hópinn. „Bara eins og það er. Það er ekkert að bögga okkur. Við höldum áfram að spila og reyna sækja úrslit, það er ekkert annað hægt.“ Valsmenn mæta KR á Meistaravöllum í næsta leik þar sem Valsmenn eiga harma að hefna eftir 4-1 tap á heimavelli í fyrir viðureign liðanna. „Bara geggjað, vonandi sem flestir sem mæta eins og í fyrri leiknum þótt úrslitin hafi ekki verið eins og við vildum hafa þau en bara mjög spenntur að fá að spila þann leik“, sagði Jakob að lokum.
Besta deild karla Valur KA Þór Akureyri Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira