Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Birgir Olgeirsson skrifar 27. maí 2026 14:07 Lögregla að störfum við Hafnarbraut á Kársnesi á sunnudag. Vísir/Lýður Valberg Byssuskotið sem hæfði mann í íbúð við Hafnarbraut á Kársnesi á sunnudag er talið hafa farið í gegnum hægri framhandlegg hans og endað í vinstri öxl. Eitt og sama skotið virðist því hafa valdið áverkum á fleiri en einum stað á líkama mannsins. Hann var fluttur á sjúkrahús eftir árásina en var ekki talinn í lífshættu.
Maðurinn gekk blóðugur inn í bakaríið Brikk við Hafnarbraut skömmu eftir hádegi á sunnudag, með handklæði vafið um særða hönd, og sagðist hafa verið skotinn. Skotárásin átti sér stað í íbúð á Hafnarbraut, sem er í um tveggja mínútna göngufjarlægð frá bakaríinu Brikk. Lögregla lagði hald á níu millimetra hálfsjálfvirka skammbyssu á vettvangi. Er það til rannsóknar hvort það sé vopnið sem var notað á vettvangi og hvort hleypt hafi verið af fleiri skotum. Karlmaður um fertugt var handtekinn á vettvangi og síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald. Mennirnir tveir þekkjast og tilkynntu báðir málið til lögreglu. Sá sem er grunaður um að hafa hleypt af skotinu tilkynnti málið fyrst til lögreglu en maðurinn sem varð fyrir skotinu hafði hrópað eftir hjálp á leið sinni úr fjölbýlishúsinu og höfðu íbúar þar tilkynnt lögreglu um skothvell og hávaða. Þegar maðurinn sem varð fyrir skotinu fer inn í bakaríið Brikk er hringt á lögreglu. Lögregla hefur áður sagt rannsókn málsins vera á viðkvæmu stigi. Ekkert bendi til þess að árásin tengist skipulagðri glæpastarfsemi eða uppgjöri í undirheimum, heldur sé málið talið einangrað atvik.
Lögreglumál Kópavogur Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira