Sumar á Íslandi krefst þess að vera alltaf skrefi á undan veðrinu Icewear 28. maí 2026 11:29 Icewear býður upp fjölbreyttan fatnað til að njóta íslenska sumarsins til fulls. Mynd/Ondrej Holub. Þegar birtan teygir sig fram eftir miðnætti gleymist veturinn fljótt og möguleikarnir til útivistar verða endalausir. Á Íslandi er hins vegar lykillinn að góðu sumri sá að vera alltaf einu skrefi á undan veðrinu. „
Útivist er svo mikilvægur hluti af íslenska sumrinu en hún þarf alls ekki að fylgja neinum fastmótuðum reglum. Útivistin getur verið í alls konar formi; stuttur göngutúr er jafngild hreyfing og að klífa Esjuna en það eina sem skiptir máli er að útivistin sé á þínum forsendum og veiti þér ánægju. Markmið Icewear er einmitt að bjóða vörur sem gera öllum kleift að stunda útivist hvernig sem viðrar,“ segir Sigrún Edda Elíasdóttir, markaðsstjóri hjá Icewear. Útivistar sumarið mikla Útivist er alls konar og þess vegna þarf fatnaðurinn að geta aðlagast ólíkum þörfum. Fyrir þá sem leita að fjölhæfum klæðnaði eru Mía dömujakkinn og Már herrajakkinn tilvaldir félagar í sumarævintýrin. Skeljakkarnir eru hannaðir með það í huga að anda vel við hreyfingu, eins og í hlaupum eða göngum, en veita á sama tíma nauðsynlega vörn þar sem þeir eru bæði vind- og vatnsheldir. Til að toppa þægindin fást buxur í stíl í sömu vörulínu, en bæði jakkinn og buxurnar eru einnig fáanleg í víðu sniði til að tryggja að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Hergilsey sherpa ullarjakkinn er léttur og þægilegur jakki sem hentar vel dagsdaglega og í göngurnar.Mynd/Ondrej Holub. Þegar líður á sumarkvöldið er nauðsynlegt að eiga góða flík til að grípa í. Icewear býður upp á fjölbreytt úrval yfirhafna, eins og hina vinsælu Hergilsey-línu, en sherpa-ullarkápurnar og vestin eru dásamleg til að henda yfir sig til að njóta sumarkvöldsins úti í góðra vina hópi aðeins lengur. Hveravellir sundlínan er fáanleg í nokkrum litum og hefur þegar slegið í gegn.Mynd/Salka Þorsteinsdóttir. Fátt jafnast síðan á við að slaka á í laugum landsins eftir góða útivist en Icewear býður einnig upp á sundfatnaðinn Hveravellir, s.s. bikiní og sundboli ásamt Brimir sundbuxunum. Þar að auki má finna fjölbreytt úrval af töskum, pokum og snyrtitöskum sem henta vel undir búnaðinn, sem og Hamar inniskóna sem fullkomna sundferðina. Fullkomin sveifla í íslenskri golu Fyrir marga er golfíþróttin hápunktur sumarsins en líkt og í annarri útivist getur veðrið á vellinum tekið örum breytingum. Þá skiptir réttur fatnaður öllu máli til að halda einbeitingunni á púttinu og leiknum, frekar en að berjast við hroll eða vind. Blacksheep vestið hentar vel yfir Skógafoss skeljakkann og Toppur derhúfan fullkomnar lúkkið í golfinu.Mynd/Róbert Arnar Ottason. Léttar yfirhafnir á borð við Skógafoss skeljakkann henta einstaklega vel í golfið, enda er jakkinn bæði vatnsheldur og andar vel. Fyrir þá sem vilja aukna hlýju eða sveigjanleika eru Blacksheep vestin með íslenskri ullarfyllingu frábær kostur. Vestin fást í herra- og kvennasniði, og nýta einstaka eiginleika íslensku ullarinnar sem heldur hita og hrindir frá sér raka án þess að þyngja sveifluna. Sóla buxurnar henta vel í golfið en á heitari dögum er hægt að renna skálmum af og nota sem stuttbuxur.Mynd/Róbert Arnar Ottason. Undir ytri skelinni er jafnframt mikilvægt að huga að rétta undirlaginu. Þar koma Bríet og Bjartur flíspeysurnar sterkar inn en þær eru mjúkar og notalegar úr fljótþornandi efni sem tryggir þægindi allan hringinn. Sóla buxurnar eru einnig fullkomnar fyrir golfið og aðra útivist. Á hlýrri dögum er einfalt að renna skálmunum af og breyta þeim í þægilegar stuttbuxur, praktísk lausn fyrir breytilegt íslenskt sumarveður. Sóla buxurnar eru einnig fullkomnar fyrir golfið og aðra útivist. Á hlýrri dögum er einfalt að renna skálmunum af og breyta þeim í þægilegar stuttbuxur, praktísk lausn fyrir breytilegt íslenskt sumarveður. Á hlýjustu sumardögunum eru póló-bolirnir Setberg og Hafnarberg klassískir og flottir valkostir sem anda vel þegar hlýnar og Toppur derhúfan er auk þess ómissandi fylgihlutur á teignum. Hafnarberg póló-bolurinn er klassískur valkostur fyrir hlýja sumardaga.Mynd/Ondrej Holub. Sumarævintýrin bíða Í vefverslun og verslunum Icewear er mikið úrval af fatnaði fyrir alls kyns útiveru en einnig er hægt að gera frábær kaup á enn betra verði í Icewear Outlet-inu. Með rétta klæðnaðinum frá Icewear er ekkert sem getur komið í veg fyrir að gera það besta úr sumrinu, hvernig sem viðrar þó svo að vonin sé að sjálfsögðu bundin við sólríkt sumar. Þín útivist þín ánægja!
Heilsa Mest lesið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Sumar á Íslandi krefst þess að vera alltaf skrefi á undan veðrinu Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Húð- og feldumhirðuvörur sem draga úr ofnæmisvöldum frá hundum og köttum Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Sjá meira